Vorúthlutun Samfélagssjóðs EFLU fór fram 11. júní síðastliðinn. Sjóðurinn hefur það að markmiði að styðja við verkefni sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, auknum lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi og hefur verið starfræktur frá árinu 2013. Í ár hlutu tíu fjölbreytt verkefni styrki en alls bárust stjóðnum 141 umsóknir.
Formleg afhending styrkjanna fór fram í höfuðstöðvum EFLU að Lynghálsi. Kristín Friðgeirsdóttir framkvæmdastjóri EFLU gerði grein fyrir þeim verkefnum sem fengu styrki og afhenti styrkina formlega ásamt blómvendi. Eftir afhendingu gafst gestum tækifæri á að hittast og ræða verkefnin við aðra styrkþega og starfsfólk EFLU ásamt því að njóta veitinga. Verkefnin sem hlutu styrk í vor endurspegla breidd og fjölbreytileika samfélagsins.
Samfélagssjóður EFLU var stofnaður árið 2013 í tilefni af 40 ára afmæli fyrirtækisins. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári og var umsóknarfrestur fyrir vorúthlutun 15. apríl og er umsóknarfrestur fyrir haustúthlutun 15. október.
Eftirfarandi verkefni hlutu styrk úr sjóðnum vorið 2026:

Kerfið - Plútó á Bolafjalli
Verkefnið Kerfið hlaut styrk fyrir uppsetningu á varanlegu og veðurþolnu skilti með fræðsluefni og QR-kóða fyrir Plútó sem er ysti hlutinn af Kerfinu. Kerfið er kvarðalíkan af sólkerfinu í réttum hlutföllum sem dreifist um Vestfirði. Staðsetning Plústós verður á tindi Bolafjalls og er bæði landfræðilega nákvæm og táknræn, þar sem hann er lengst frá „Sólinni“ á Ísafirði. Markmiðið er að skapa fræðandi og einstaka upplifun fyrir gesti, á sama tíma og það styrkir samstarf sveitarfélaga og aðgengi almennings að vísindamiðlun.

Selárdalshátíð - Félag um listasafn Samúels
Félag um listasafn Samúels hlaut styrk til að halda Selársdalshátíð helgina 7.-9. ágúst í Listasafni Samúels og í Safni Gísla á Uppsölum. Boðið verður upp á sögugöngu í Verdali, sólmyrkvasmiðju og Íslandsmeistaramót í flugdrekagerð. Tónleikar verða í kirkjunni þar sem Krummi Björgvinsson, Kraftgalli (Arnljótur Sigurðsson) og Hermigervill (Sveinbjörn Thorarensen) koma fram auk fleiri lista- og fræðimanna.

Opnun Gíslasafns á Uppsölum - Félag um safn Gísla á Uppsölum
Félag um safn Gísla á Uppsölum hlaut styrk vegna formlegrar opnunar á Safni Gísla á Uppsölum. Húsið á Uppsölum hefur lengi staðið autt en verður opnað almenningi við formlega athöfn þann 7. ágúst. Með því að opna Uppsali sem safn mun aðdráttarafl Selárdals sem perlu við sunnanverðan Arnarfjörð aukast. Nú þegar hefur húsið verið gert upp að utan og aðgengi bætt þannig að allar gerðir bílar komist að húsinu. Logi Einarsson menningarmálaráðherra mun ávarpa gesti og lesin verða upp kvæði og hugleiðingar eftir Gísla ásamt öðrum erindum og leikið verður á orgel Gísla. Þá verður boðið upp á viðbit að hætti Gísla.

Reykjavík Bear 2026 - Bangsafélagið
Bangsafélagið hlaut styrk til að standa undir kostnaði við aðalviðburðarstað hátíðarinnar á Reykjavík Bear 2026. Reykjavík Bear er árleg fjögurra daga hátíð í september sem laðar að um 200 þátttakendur hvaðanæva úr heiminum og er ein stærsta LGBTQ+ hátíð landsins. Hátíðin leggur áherslu á líkamsvirðingu, fjölbreytileika og inngildingu og skapar öruggt rými fyrir fólk sem upplifir útilokun.
Bergið Headspace - Geðfræðsla fyrir framhaldsskóla
Bergið Headspace hlaut styrk til halda uppi geðfræðslu fyrir framhaldsskólanema í samstarfi við menntaskóla landsins. Undanfarið hefur orðið vaxandi eftirspurn eftir fræðslu í geðheilbrigðismálum fyrir framhaldsskólanema og hefur skólasamfélagið leitað eftir samstarfi við Bergið. Fræðslan mun styðja við nemendur og starfsfólk með það að markmiði að efla geðheilbrigði, draga úr fordómum og veita ungmennum verkfæri til að takast á við eigin líðan og áskoranir með það að markmiði að bæta líðan, auka þátttöku í námi og styrkja sjálfsmynd ungmenna.
Kaup á rafmagnshjólum - Björgunasveitin Garðar Björgunarsveitin
Garðar á Húsavík hlaut styrk upp í kaup á rafmagns-fjallahjólum og tengdum grunnbúnaði sem nýtast í leit, björgun og þjálfun. Hjólin auka hraða og skilvirkni í leitaraðgerðum á svæðum þar sem erfitt er að komast að og nýtast einnig í uppbyggingu ungliðastarfs sveitarinnar með þjálfun og undirbúningi fyrir framtíðarþátttöku í björgunarstörfum. Með styrknum leggur EFLA til fjármagn sem mun aðstoða við að bæta viðbúnað björgunarsveitarinnar og auka öryggisgetu samfélagsins.
Heilsuefling eldri borgara - Félag eldri borgara í Dalasýslu
Félag eldri borgara í Dalabyggð hlaut styrk úr Samfélagssjóði EFLU fyrir kaupum á búnaði sem gerir félögum kleift að auka heilsueflingu í starfi. Í Búðardal er í byggingu nýtt íþróttahús sem markar tímamót fyrir svæðið, þar sem sambærileg aðstaða hefur ekki áður verið til staðar. Félagið sem heldur nú úti reglulegum bocciaæfingum og gönguferðum sér tækifæri með nýrri aðstöðu og verður styrkurinn notaður til þess að kaupa nýtt bocchiasett. Styrkurinn mun því nýtast til að viðhalda og styrkja það góða starf sem félagið stendur fyrir nú þegar.
Hreyfi- og samfélagsrými fyrir Bíldudal og Barðaströnd - HHF íþróttafélag
HHF-íþróttafélag, sem sameinar Bíldudal, Barðaströnd og Patreksfjörð, vinnur að því að jafna aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi á svæðinu. Félagið fær styrk sem nýtast mun upp í kaup á fjölbreyttum og aðgengilegum búnaði til leikja, hreyfingar og félagsstarfs fyrir alla aldurshópa. Markmiðið er að efla þátttöku, hreyfingu og félagslega tengingu íbúa og styrkja þannig samfélagið í heild.
Skapandi smiðjur fyrir börn og fjölskyldur á Vestfjörðum - Helena Aðalsteinsdóttir
Helena Aðalsteinsdóttir hlaut styrk til að halda listasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur í tengslum við listsýningu í Edinborgarhúsinu á Ísafirði sumarið 2026. Markmiðið er að auka aðgengi að samtímalist og skapa lifandi vettvang þar sem gestir geta tekið virkan þátt í sköpun. Í smiðjunum verður unnið með einföld efni og áhersla lögð á leik, ímyndunarafl og sköpunarferli. Verkefnið stuðlar að sterkari tengingu milli lista og samfélags og eflir þátttöku fjölskyldna í menningarlífinu. Styrkurinn mun nýtast í efniskostnað, uppsetningu smiðja innan sýningarýmis og kynningu þeirra til almennings.
STAÐUR - Textílfélagið
Textílfélagið fær styrk fyrir samsýningu Textílfélags Íslands, STAÐUR, sem haldin verður sumarið 2026 í Íslenskri Grafík. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir listafólk til að þróa og sýna ný textílverk út frá sameiginlegu þema sem tengist umhverfi, samfélagi og persónulegri reynslu. Sýningin eykur sýnileika textíls sem listforms og býður almenningi að kynnast fjölbreyttri samtímalist. Styrkurinn mun nýtast í uppsetningu, kynningu og miðlun verkefnisins.
EFLA óskar öllum styrkþegum innilega til hamingju með verkefnin. Umsóknarfrestur í Samfélagssjóð EFLU að hausti 2026 rennur út 15. október.
