Námskeiðið er ætlað fyrir þá sem sinna viðhaldi og umhirðu á golf- og knattspyrnuvöllum, m.a. starfsmenn golfklúbba, knattspyrnufélaga og vallarstjóra.
Umhirða golf- og knattspyrnuvalla
Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi reynslu innan fagsins og metnað fyrir vönduðum vinnubrögðum. Námskeiðið er einnig hugsað sem endurmenntun fyrir faglærða golfvallafræðinga og garðyrkjumenn.
Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um:
- Aðstæður á völlum - álag á knattspyrnu- og golfvöllum.
- Æskilegar / óæskilegar grastegundir, m.a. hvaða grastegundir henta / henta ekki, m.t.t. mismunandi aðstæðna og álags.
- Mikilvægi loftunar í viðhaldi grasflata, s.s. misjafnar gerðir loftunar, tilgangur og markmið.
- Helstu sjúkdómar í grasflötum og varnir gegn þeim, m.a. sveppasjúkdómar.
- Áburðarnotkun, m.a. helstu áburðartegundir og stýringu áburðargjafar m.t.t. aðstæðna hverju sinni.
- Vatnsnotkun í umhirðu, vökvun í samræmi við þarfir og aðstæður.
- Áætlanagerð og verkefnastýringu, m.a. umhirðuáætlanir. Kennarar : Ágúst Jensson Golfvallafræðingur, Árni Bragason Jurtaerfðafræðingur, Baldur Gunnlaugsson Garðyrkjutæknir, Brynjar Sæmundsson Golfvallafræðingur, Halldór Sverrisson Plöntusjúkdómafræðingur og Magnús Bjarklind Garðyrkjutæknir.
Tími: föstudagurinn 3. apríl kl. 9-15 - Þátttakendur skrá sig í tölvupósti á netfangið
sigi@sigi.is fyrir 28. mars n.k.
Kennslan fer fram hjá í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, E-salur
Verð: 9.500. kr. Námsgögn og léttar veitingar innifalið í verði.
