EFLA undirritaði í gær rammasamning um verkfræðiráðgjöf við Landsnet. Samningurinn snýr að kaupum á þjónustu ráðgjafa er varða verkhönnun, útboðshönnun og verkeftirlit við uppbyggingu og endurnýjun á flutningsmannvirkjum Landsnets.
Undirritun rammasamnings
Auk EFLU undirritaði Landsnet rammasamning við Hnit, Mannvit, Verkís, VSÓ, Nordconsult og Verkfræðistofu Reykjavíkur.
EFLA var metin tæknilega hæf í öllum flokkum útboðsins. Fyrstu verkefnin undir samningnum eru þegar hafin, sem dæmi má nefna útboðshönnun á nýrri 220 kV háspennulínu á Norðausturlandi, Hólasandslínu 3 sem EFLA fékk eftir útboð innan rammasamnings.
Góður árangur í útboði sem þessu byggir á áralangri reynslu EFLU af hönnun flutningsmannvirkja á Íslandi og af verkefnum víða um heim svo sem í Noregi, Svíþjóð, Grænlandi, Póllandi, Finnlandi, Frakklandi og víðar. Undir þessu öfluga starfi hjá EFLU stendur stór hópur tæknifólks sem starfar ýmist á Íslandi eða dótturfélögum EFLU í Noregi, Svíþjóð og Póllandi.
![A large group of people standing together against a wall with logo "LANDSNET"](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fefla-is.payload.is%2Fmedia%2Fundirritun-rammasamnings-1.jpg&w=2048&q=80)
Á myndinni má sjá fulltrúa EFLU, þau Guðmund Þorbjörnsson framkvæmdastjóra EFLU og Sunnu Björg Reynisdóttur, ásamt fulltrúum frá Landsneti, Hnit, Mannvit, Verkís og Nordconsult.