Uppbygging á miðbæjarskipulagi Akureyrar

14.12.2020

Fréttir
3D model of a city block with buildings, roads and green space

Lögð hefur verið fram breytingartillaga á miðbæjarskipulagi Akureyrar. Líkanmynd: Kollgáta.

Akureyrarbær hefur tilkynnt tillögur að breytingum á miðbæjarskipulagi. EFLA, ásamt samstarfsaðilum, hefur sinnt ráðgjöf um skipulagsmál í verkefninu.

Uppbygging á miðbæjarskipulagi Akureyrar

Undanfarið hefur verið unnið að tillögum að breytingu á miðbæjarskipulagi Akureyrarbæjar og voru tillögurnar kynntar á rafrænum íbúafundi fimmtudaginn 10. desember og í framhaldinu óskað eftir ábendingum frá íbúum og hagsmunaaðilum. Horft er til þess að uppbygging geti hafist sem fyrst en tillagan byggir á niðurstöðum þverpólitísks stýrihóps með fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn.

Vistvænn og lifandi miðbær

Markmið tillögunnar er að styrkja miðbæinn með aukinni áherslu á lifandi og vistvænan miðbæ fyrir alla. Þá er fyrirhugað að nýta betur opið landrými á milli Skipagötu og Glerárgötu með nýjum húsaröðum, stækka þannig miðbæinn og bæta tengingu við höfnina og Hof með rúmgóðum austur-vestur gönguásum.

EFLA, ásamt Landslag og Kollgátu, unnu að gerð tillögunnar en starfsmenn EFLU bæði á Akureyri og í Reykjavík komu að verkefninu.

Sjá einnig umfjöllun

Frétt á RÚV

Frétt á Mbl

3D model of a modern buildings facade, street and tress

Skipagata og nýr vestur/austur gönguás. Líkanmynd: Kollgáta