Vefir EFLU hlutu Íslensku vefverðlaunin 2025 sem Fyrirtækjavefur ársins í flokki stórra fyrirtækja í Hörpu í gær.
Styrkja ímynd á fjölbreyttum mörkuðum
Nýir vefir EFLU, sem eru sex talsins, voru þróaðir til að samræma ásýnd á öllum mörkuðum, mæta mismunandi þörfum markhópa og aðlaga samskipti miðað við fjölbreytt þjónustuframboð. Vefunum er ætlað að endurspegla breidd félagsins þvert á landamæri, styrkja ímynd fyrirtækisins og varpa ljósi á umhverfi þar sem afburðahugvit blómstrar.
Að baki vefjanna liggur viðamikil og metnaðarfull vinna sem fólst í því að miðla fjölbreyttu og umfangsmiklu þjónustuúrvali ólíkra markaða á sex tungumálum. Verkefnið hefur því verið mikil áskorun en um leið einstakt tækifæri sem skilar sér í ómetanlegum grundvelli til miðlunar fyrir félagið sem heild.
Samstillt teymisvinna og skýr sýn
Mikil áhersla var lögð á ferðalag og upplifun notanda til að styrkja trúverðugleika, gera efni aðgengilegra og framsetningu skýrari. Vefumsjónarkerfið Payload var valið til að mæta þörfum EFLU og auka möguleika á sérsniðinni framsetningu eftir ólíkum mörkuðum. Jafnframt var farið í umfangsmikla leitarvélabestun og vinnu til að auka sýnileika í gervigreind sem hefur skilað verulegum árangri.
Verkefnið er afrakstur samstilltrar teymisvinnu, úthalds og skýrrar sýnar. Við erum stolt af því að hljóta Íslensku vefverðlaunin sem eru okkur mikil hvatning og um leið skýr staðfesting á því að verkefnið sé að skila áþreifanlegum árangri. Vefirnir eru í stöðugri þróun og verðlaunin veita okkur mikilvægan meðbyr til að halda áfram að bæta upplifun og þjónustu enn frekar.
Vefirnir eru samstarf EFLU og Hugsmiðjunnar auk þess sem Ceedr og Digido komu að vinnunni sem ráðgjafar varðandi stafræna miðlun og Kolofon varðandi ásýnd.
