Beint í efni

Verkefni á vegum EFLU hljóta styrk frá Aski

2. júní 2026

Fréttir
Hallgrímskirkja og Reykjavík, Esjan í bakgrunni

Tvö verkefni á vegum EFLU hafa hlotið styrk úr Aski, mannvirkjarannsóknasjóði, sem starfar á vegum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS). Verkefni EFLU sem hlutu styrki eru annars vegar „Vind-og slagregnsáraun á mannvirki“ og hins vegar„Snjóálagsforsendur fyrir mannvirkjahönnun“ sem unnið er í samstarfi við Háskólann í Reykjavík.

Rannsóknir á veðurálagi á mannvirki

Verkefnið„Vind-og slagregnsáraun á mannvirki“ snýr að notkun á tölulegum straumfræðihermunum við útreikninga á veðurálagi. Hönnunarálag fyrir vind er almennt metið út frá einfölduðum jöfnum í stöðlum eða með kostnaðarsömum hermunum í vindgöngum. Markmið verkefnisins er m.a. að sýna hvernig nota má hermanir til að fá nákvæmari upplýsingar um vindflæði í kringum byggingar og slagregnsáraun. Munu niðurstöðurnar gagnast hönnuðum þar sem veðurálag hefur bein áhrif á hönnun, efnisval og endingu mannvirkja.

„Snjóálagsforsendur fyrir mannvirkjahönnun“ er verkefni unnið af sérfræðingi EFLU í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Verkefnið miðar að því að endurmeta snjóálagsforsendur fyrir Ísland í tengslum við endurskoðun á Evrópustöðlum fyrir mannvirkjahönnun. Niðurstöðurnar munu meðal annars nýtast við gerð uppfærðs snjóálagskorts fyrir Ísland.

Askur styður rannsóknar- og þróunarverkefni á sviði mannvirkjagerðar með það að markmiði að efla þekkingu, stuðla að umbótum og mæta samfélagslegum áskorunum á borð við öryggi, endingu og sjálfbærni mannvirkja.

EFLA leiðandi í rannsóknum á áhrifum veðurfars

Styrkirnir staðfesta að sérfræðingar EFLU eru í fararbroddi þegar kemur að rannsóknum á áhrifum veðurfars á mannvirki og þróun hönnunarlausna sem taka mið af íslenskum aðstæðum.

Með þátttöku í slíkum rannsóknum leggur EFLA sitt af mörkum til þróunar, nýsköpunar, og aukinna gæða við mannvirkjagerð á Íslandi ásamt því að tryggja að þekkingin nýtist beint í verkefnum fyrirtækisins og sé til hagsbóta fyrir fagfólk og samfélagið í heild.

EFLA - Verkefni á vegum EFLU hljóta styrk frá Aski