Um þessar mundir vinnur EFLA að tveimur verkefnum í Miðausturlöndum. Annað verkið er vegna stækkunar á álveri í Bahrain og hitt er í tengslum við gangsetningu á súrálsverksmiðju í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum.
Verkefni í Miðausturlöndum
Það er Iðnaðarsvið EFLU sem fer fyrir báðum verkefnunum en starfsfólk þess hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af verkefnum tengdum álverum í Miðausturlöndum.
Verkefnin eru unnin í samvinnu við Reel Alesa frá Sviss en samstarf þess við EFLU hefur verið afar farsælt og staðið í rúma tvo áratugi. Hlutverk EFLU er að leysa þeirra sérfræðinga af í uppstarti og gangsetningum flókins búnaðar. Um afar ábyrgðarfullt starf er að ræða og mikil pressa á starfsmönnum.
Stærsta álver í heimi
Í Bahrain er verið að að stækka álver Alba og auka framleiðslugetuna í 1,5 milljón tonn. Eftir stækkunina verður álverið stærsta álver heims. Til samanburðar má nefna að samanlögð framleiðsla íslensku álveranna er um 0,8 milljón tonn.
![Industrial site with multiple structure and storage near a coastline](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fefla-is.payload.is%2Fmedia%2Fverkefni-i-midausturlondum-1.jpg&w=2048&q=80)
Ný súrálsverksmiðja gangsett
Þá er verið að vinna að gangsetningu súrálsverksmiðju í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum og er gert ráð fyrir að framleiðslan verði 2 milljónir tonna af súráli á ári, sem er 40% af súrálsnotkun beggja álveranna í Furstadæmunum.
Alhliða ráðgjöf í álverum
Starfsfólk EFLU hefur komið að fjölbreyttum verkefnum í áliðnaðinum, bæði hérlendis og erlendis, og aflað sér sérþekkingar á sviðinu. Verkefnin hafa verið fjölbreytt og má þar nefna hönnun stýrikerfa, forritun og gangsetning hreinsivirkja og margvíslegra flutningskerfa.
- 1 / 2
Flutningskerfi – Bahrain
- 2 / 2
Háleit markmið – Bahrain