Verkfræðihönnun fjölbýlishúsa við Elliðabraut

26.11.2020

Fréttir
bird eye view of apartment buildings in a green landscape under a partly cloudy sky

Elliðabraut 12-22 í Norðlingaholti. EFLA sá um verkfræðihönnun húsanna. Mynd: Arkþing.

Við Elliðabraut 12-22 í Norðlingaholti hafa risið sex ný og glæsileg fjölbýlishús. EFLA sá um verkfræðihönnun húsanna en sérstök áhersla var lögð á vandaða hljóðvist og loftgæði í byggingunum.

Verkfræðihönnun fjölbýlishúsa við Elliðabraut

Fjölbýlishúsin eru hönnuð með tilliti til algildrar hönnunar og eru sex talsins á 4-5 hæðum. Íbúðirnar eru 117 talsins, frá 50-150 m2, með sameiginlegri bílageymslu.

Mikill metnaður var lagður í hönnun húsanna en EFLA sá um alla verkfræðihönnun þ.e. burðarþol, raflagnir, loftræsi- og lagnakerfi, brunaráðgjöf og öryggi ásamt hljóðvist. Sérstök áhersla var lögð á loftgæði og eru allar íbúðirnar því búnar frístandandi loftræsingu. Slíkt stuðlar að heilbrigði hússins og íbúa, sparar orkunotkun og stuðlar að betri loftgæðum. Þá var hugað vel að hljóðvist í húsunum meðal annars með vali á hljóðeinangrandi gluggum.

Eigandi húsanna og byggingaverktaki er MótX, arkitektar eru Arkþing og Nordic Office Arcitecture AS og landslagsarkitekt er Teiknistofan Storð.

Sjá nánar á vef um Elliðabrautina.