Beint í efni

Við hverju má búast í uppfærðum ISO staðli?

5. mars 2026

Blogg
Gróið votlendi með tjörn sem speglar tré, himin og fjöll í bakgrunni á björtum sumardegi.

ISO 14001-staðallinn er leiðandi alþjóðlegur staðall í umhverfisstjórnun. Rúmlega 350.000 fyrirtæki/skipulagsheildir um allan heim hafa fengið vottun á starfsemi sína í umhverfismálum skv. þessum staðli.

Á næstu vikum kemur út ný útgáfa af staðlinum ISO 14001:2026. Hér verður farið yfir helstu breytingar er snerta m.a. áhættumat, lífsferilshugsun, breytingastjórnun og betri tengingu við aðfangakeðju.

Markmið staðalsins er að fyrirtæki hafi skilgreindan ramma til að vinna eftir til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum frá rekstri, vernda umhverfið og bregðast við breyttum umhverfisaðstæðum í samræmi við félagslegar og hagrænar þarfir.

Nú standa fyrirtæki frammi fyrir stórum loftslagsáskorunum, þörf á aukinni aðlögun í rekstri vegna loftslagsmála og auknum kröfum um upplýsingamiðlun um umhverfismál í rekstri. Því er mikilvægt að ISO 14001-staðallinn taki mið af þeim umhverfislegu og samfélagslegu breytingum sem eiga sér stað í heiminum. Undanfarin ár hefur staðið yfir endurskoðun á staðlinum í takt við þróun umhverfisáskorana, með það að markmiði að leiða fyrirtæki áfram á sjálfbærnivegferð sinni.

Endurskoðun á staðlinum ISO 14001:2015

Árið 2024 var ein breyting gerð á ákvæðum í greinum 4.1 og 4.2 í ISO 14001-staðlinum, ISO 14001:2015/Amd 1:2024. Þessar breytingar tengjast annars vegar því að fyrirtækin meti hvort loftslagsbreytingar séu ytri málefni sem geta haft áhrif á stefnu og árangur þeirra í umhverfismálum og hins vegar hvort hagsmunaaðilar gætu haft væntingar sem tengjast loftlagsbreytingum.

Vinna við heildarendurskoðun á ISO 14001:2015 staðlinum hófst snemma árs 2023. Drög að breyttum staðli voru gefin út til umsagnar (Draft Internatinal Standars, ISO/DIS 14001) og er búist við að ný uppfærsla verði gefin út á næstu vikum. Gert er ráð fyrir að fyrirtæki hafi 2-3 ár til að aðlaga umhverfisstjórnunarkerfi sín að þeim breytingum sem fram undan eru. Unnið er einnig að uppfærslu á ISO 9001:2018 gæðastjórnunarstaðlinum og er á þessari stundu gert ráð fyrir að hann komi út í nýrri útgáfu seinni hluta árs 2026.

Markmið þessa pistils er að draga fram helstu breytingar sem hugsanlega má búast við að komi fram í nýrri uppfærslu ISO 14001 staðalsins. Hins vegar er vert að taka fram að lokaútgáfa staðalsins getur breyst, þangað til ný uppfærsla verður formlega gefin út.

Við hverju má búast í ISO 14001:2026 uppfærslunni?

Væntanleg uppfærsla á staðlinum miðar að því að gera staðalinn skýrari með betri leiðbeiningum og í takt við núverandi viðleitni alþjóðasamfélagsins til sjálfbærni. Breytingarnar eiga að hjálpa fyrirtækjum að laga sig að og takast á við núverandi alþjóðlegar umhverfisáskoranir.

Gert er ráð fyrir að helstu áherslubreytingar staðalsins fjalli um:

Loftslagsaðgerðir og umhverfisáhrif

Staðallinn mun leggja áherslu á sértækar loftslagstengdar aðgerðir, þ.e. að fyrirtæki skilgreini aðgerðaráætlun í loftslagsmálum sem er raunhæf og í takt við alþjóðleg sjálfbærnimarkmið er tengjast t.d. kolefnislosun og kolefnishlutleysi. Staðallinn mun einnig leggja áherslu á fleiri þætti umhverfismála en áður, svo sem líffræðilegan fjölbreytileika, mengun og framboð auðlinda. Fyrirtækið þarf að meta hvernig rekstur þess geti haft áhrif á umhverfisþætti eða orðið fyrir áhrifum þeirra.

Samhengi skipulagsheildarinnar og stýring virðiskeðju

Aukin áhersla er lögð á að skilja víðtækara samhengi skipulagsheildarinnar/fyrirtækisins. Fyrirtækið þarf bæði að stýra innri ferlum sínum og ytri þáttum sem geta haft áhrif á stefnu og umhverfisárangur, auk þess að kalla eftir markvissara mati á sjálfbærni aðfangakeðjunnar.

Umhverfisáhætta og vistferilssjónarmið

Gert er ráð fyrir að staðallinn muni leggja meiri áherslu á að meta umhverfisáhættu yfir allan vistferil vöru og þjónustu — frá hönnun til förgunar. Þessi breyting mun hjálpa fyrirtækjum að bera kennsl á og draga úr hugsanlegum umhverfisáhrifum á sama tíma og stuðla að sjálfbærni til lengri tíma litið á hverju stigi vistferilsins. Uppfærður staðall mun leggja meiri áherslu á áhættumiðaða hugsun og hvetja fyrirtæki til að meta og stjórna umhverfisáhættu með kerfisbundnari hætti.

Áhættustýring og seigla (e. resiliance)

Talið er að breytingarnar muni hvetja fyrirtæki til að skilgreina umhverfisþol og -seiglu og innleiða aðgerðir þar að lútandi í starfsemi sína og aðstoða þannig fyrirtæki við að aðlagast loftlagsbreytingum, svo sem vegna öfga í veðri, og lágmarka áhrif þeirra á umhverfið.

Skipulagning breytinga

Staðallinn mun leggja áherslu á mikilvægi þess að fyrirtæki stjórni og skipuleggi breytingar. Þetta tryggir að allar stefnumótandi, rekstrarlegar eða tæknilegar breytingar séu vandlega skipulagðar og framkvæmdar til að lágmarka umhverfisáhrif.

Að auki mun grunnuppbygging staðalsins breytast í samræmi við aðra ISO stjórnkerfisstaðla og meiri áhersla er lögð á upplýsingagjöf, sem endurspeglar vaxandi kröfur um gagnsæi upplýsinga um umhverfisárangur fyrirtækja.

ISO 14001 mun halda áfram að samræmast öðrum alþjóðlegum römmum/kerfum sem auðvelda fyrirtækjum að innleiða og halda utan um fjölmargar sjálfbærniaðgerðir í starfsemi sinni svo sem heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (SDG) og alþjóðlegar kröfur um upplýsingagjöf svo sem ESG og CSRD.

Lokaorð

ISO 14001:2026 mun fela í sér hóflegar breytingar sem stuðla að samþættri og sveigjanlegri nálgun á umhverfisstjórnun fyrirtækja þar sem áhersla er á umhverfisaðgerðir, áhættustýringu og stafrænar lausnir. Breytingarnar fela einnig í sér meiri áherslu á sjálfbærni í virðiskeðjunni, vistferilshugsun og upplýsingamiðlun. Loks eiga breytingarnar að tryggja samræmi við alþjóðleg sjálfbærnimarkmið. Með samræmingu við alþjóðlega þróun í sjálfbærni mun ISO 14001 hjálpa fyrirtækjum að vera fremst í flokki hvað varðar hlýtningu og frammistöðu. Áskorun fyrirtækja er svo að innleiða þessar breytingar inn í starfsemina á skilvirkan hátt.

Hvað geta fyrirtæki gert til að undirbúa sig fyrir verðandi breytingar?

Við mælum með því að fyrirtæki byrji að huga að þeim breytingum sem munu koma og skipuleggja hana inn í stjórnkerfi sitt.

Ráðlögð skref fyrir innleiðingu breytinganna:

  1. Kynntu þér innihald og kröfur nýja staðalsins.
  2. Gerðu gatagreiningu á kröfum nýja staðalsins og skipulagðu hvernig fyrirtækið ætlar að bregðast við til að uppfylla þær og settu fram aðgerðaáætlun fyrir breytingarnar.
  3. Þjálfaðu viðeigandi starfsfólk til að tryggja að það skilji kröfur og lykilbreytingar.
  4. Innleiddu aðgerðir og uppfærðu stjórnunarkerfið til að uppfylla nýju kröfurnar.

EFLA getur stutt við uppfærslu í takt við nýjar kröfur

EFLA getur aðstoðað þig við að uppfylla kröfur í samræmi við nýja útgáfu af ISO 1400:2026

Við getum aðstoðað þig við að þróa stjórnkerfin þín áfram í takt við samfélagslegar breytingar með:

  1. Þjálfun og fræðsla um þær breytingar sem ný uppfærsla á staðlinum leggur áherslu á.
  2. Framkvæma gatagreiningu á nýjum kröfum og starfsemi fyrirtækisins til að meta hversu vel stjórnunarkerfið uppfyllir nýju kröfurnar.
  3. Uppfærsla á verklagi og innleiðingu í samræmi við nýju útgáfuna af staðlinum.
Mynd sem sýnir hringferli ISO 14001:2026 með fjórum meginþáttum: Skipulag, Stuðningur og rekstur, Mat á frammistöðu og Umbætur, sem umlykja staðalinn í miðju.
EFLA - Við hverju má búast í uppfærðum ISO staðli?