Í morgun birtist viðtal í Viðskiptablaðinu við Kristínu Friðgeirsdóttur, framkvæmdastjóra EFLU, þar sem hún ræðir um stöðu og framtíð fyrirtækisins á tímum óvissu og hraðra breytinga.
Þekking, aðlögunarhæfni og vöxtur á tímum óvissu
Í viðtalinu fer Kristín meðal annars yfir breidd þeirrar þekkingar sem býr hjá sérfræðingum EFLU og þá stærðargráðu sem fyrirtækið starfar á, bæði hérlendis og erlendis. Hún fjallar jafnframt um þá óvissu sem einkennt hefur rekstrarumhverfið að undanförnu, aukna áherslu á öryggi innviða og mikilvægi nýsköpunar og aðlögunarhæfni í starfsemi fyrirtækja.
Þá kemur Kristín inn á gervigreind og þau tækifæri sem tæknin felur í sér fyrir EFLU, bæði til að efla lausnir og bæta ferla. Um leið leggur hún áherslu á mikilvægi þess að nálgast tæknina af ábyrgð og vera meðvituð um þær áskoranir og ógnir sem henni geta fylgt.
Í viðtalinu er einnig fjallað um vöxt EFLU á erlendum mörkuðum og þá sérhæfingu fyrirtækisins í orkuflutningskerfum, sem hefur reynst sérstaklega eftirsótt á alþjóðavettvangi og verið einn helsti vaxtarbroddur starfseminnar á undanförnum árum.
Að lokum lítur Kristín fram á veginn og segir frá því að langtímahugsun sé leiðarljós í stefnu EFLU, þar sem markmiðið er stöðugur og sjálfbær vöxtur. Hún bendir á að tækifæri til áframhaldandi vaxtar séu fjölmörg, ekki síst á erlendum mörkuðum, samhliða nýsköpun hérlendis þar sem nýjar viðskiptahugmyndir og lausnir falla vel að þróun og vexti fyrirtækisins á Íslandi.
Þau sem eru með áskrift að Viðskiptablaðinu geta nálgast viðtalið á blaðsíðum 20–21 eða í vefútgáfu hér
