Sérfræðingar EFLU komu að vinningstillögu í hugmyndaleit vegna rammaskipulagsgerðar á svæði Halla og nágrennis í Úlfarsárdal. Aðkoma EFLU var aðallega í skipulagi samgangna á svæðinu, þ.e. legu gatna og stíga og tengingum við núverandi innviði, meðal annars með tilliti til umferðaröryggis.
Skýr hverfismiðja og tenging við umhverfið
Tillagan var kynnt á opnum kynningarfundi borgarstjóra og markar upphaf mótunar framtíðarsýnar fyrir Halla í Úlfarsárdal. Tillagan sem ber nafnið Hallar – samfélag við hlíðarrætur var unnin af Nordic Office of Architecture í samstarfi við EFLU og SLA og setur náttúru og landslag í forgrunn skipulags og almenningsrýma.
Markmið tillögunnar er að skapa eftirsóknarvert hverfi sem bætir lífsgæði og styrkir nærumhverfið. Uppbyggingin byggir á heildrænni nálgun þar sem sjálfbærni, virkur lífsstíll og sterk samfélagsheild fara saman.
Hverfismiðja verður hjarta byggðarinnar með fjölbreyttri þjónustu og almenningsrýmum. Áhersla er lögð á náttúrulegt umhverfi sem styður daglegt líf og notkun allt árið. Skólahverfi eru miðlægt skipulagsatriði í tillögunni. Tvö skólahverfi eru staðsett í grænum geira sem tengir byggð, útivist og náttúru og getur jafnframt þjónað uppbyggingu við Leirtjörn.

Áhersla á vistvæna samgöngumáta
Samgöngur byggja á forgangi gangandi og hjólandi ferðamáta. Almenningssamgöngur fá skýran sess með skilgreindum almenningssamgönguási. Akandi umferð er mótuð með öryggi að leiðarljósi. Allt svæðið er í innan við tíu mínútna göngufjarlægð frá almenningssamgöngum sem á að geta dregið úr þörf á einkabifreiðum íbúa frá degi til dags.
Hugmyndaleitin fól í sér mótun rammaskipulags með skýrri framtíðarsýn. Meðal þess sem var tekið til hliðsjónar voru landnotkun, byggðamynstur, þéttleiki og tengingar svæðisins við nærliggjandi hverfi og náttúru. Næstu skref verða að vinna áfram með vinningstillöguna og að hefja samráð við íbúa og hagsmunaðila um framhaldið. verður unnið áfram með vinningstillöguna og hafið samráð við íbúa og hagsmunaaðila um næstu skref.

