Vinnustofa um viðhald bygginga og nýtingu byggingarefna

25.06.2025

Fréttir
Fólk á vinnustofu.

Þann 4. júní síðastliðinn fór fram vinnustofa á vegum EFLU í samvinnu við HMS. Vinnustofan var hluti af yfirstandandi rannsóknarverkefni sem styrkt er af Aski mannvirkjarannsóknarsjóði og fellur undir aðgerð 5.1.14 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð.

Mikilvægt og tímabært

Verkefnið miðar að því að samræma og uppfæra viðmið um líftíma og endingu byggingarefna á Íslandi, en um mikilvæg viðmið er að ræða sem koma til með að nýtast við verðmætamat, viðhaldsáætlanir og útreikninga á kolefnisspori bygginga á líftíma þeirra.

Eftir að Gústaf Hermannsson hjá HMS hafði opnað fundinn og boðið fólk velkomið fór Björn Marteinsson PhD yfir stöðu þekkingar hér á landi varðandi endingu og nottíma byggingarefna, hvernig staðið væri að endingarmati á Norðurlöndunum og hver þörfin væri á þessum upplýsingum. Þórður Ingimar Kristjánsson, sérfræðingur í fasteignum og viðhaldi hjá EFLU, fór að því búnu yfir viðfang vinnustofunnar og nálgun gagnvart ólíkum byggingarhlutum og–efnum.

Fólk á vinnustofu.

Skipt upp í fjóra hópa

Á vinnustofunni var þátttakendum raðað á fjögur vinnuborð þar sem farið var kerfisbundið yfir eftirfarandi byggingarhluta.

  • Útveggi og ysta yfirborð
  • Glugga
  • Þök
  • Lagnir, loftræstingu og innifrágang

Vinnur EFLA nú úr niðurstöðum vinnustofunnar sem og áframhaldandi rannsóknum í tengslum við þetta verkefni.

Um var að ræða mikilvægt og tímabært verkefni fyrir alla sem starfa við rekstur, viðhald og mat fasteigna. Á vinnustofunni mættu fulltrúar fagfólks með víðtæka reynslu af viðhaldi fasteigna, hvort sem það væri í opinberum rekstri, hjá verktökum, fasteignafélögum eða öðrum lykilaðilum í greininni. Þátttaka þessara aðila er lykillinn að árangri verkefnisins og stuðlar að mótun trausts og gagnadrifins grunns að samræmdum viðmiðum sem gagnast öllum sem koma að fasteignarekstri og mannvirkjagerð.

Fólk á vinnustofu.