Beint í efni

Vorfögnuður EFLU heppnaðist vel

20. maí 2026

Fréttir
Kristín Friðgeirsdóttir talar við gesti frá sviðinu.

Vorfögnuður Kristín Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri EFLU, ræðir við gesti.

EFLA hélt vorfögnuð fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila í liðinni viku. Fögnuðurinn var haldinn í Gamla bíói og Petersen-svítunni þar sem fjölmargir gestir skemmtu sér og nutu góðra veitinga.

Mikilvægt tækifæri til samtals

Boðið var upp á fjölbreytta skemmtun, svo sem tónlistarflutning og leiki auk þess sem léttar veitingar voru í boði fyrir gesti. Það sem skipti þó mestu máli voru samtöl við og samvera starfsfólks EFLU með viðskiptavinum. Viðburður sem þessi er dýrmætur vettvangur fyrir okkur til þess að hitta viðskiptavini og samstarfsaðila, dýpka tengslin og eiga góða stund saman utan hefðbundinnar vinnu.

Starfsfólk EFLU þakkar þeim sem mættu kærlega fyrir komuna og við hlökkum til frekara samstarfs og góðra samskipta í framtíðinni. Myndir frá vorfögnuðinum má finna hér fyrir neðan.

EFLA - Vorfögnuður EFLU heppnaðist vel