Sex verkefni kynnt á Rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar
Starfsfólk EFLU kynnti verkefni sín sem hlutu styrk úr Rannsóknasjóði.
-
Magnús Arason kynnti hvernig fella má brúarverkefni að hugmyndafræði hringrásarhagkerfa.
Árleg Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar var haldin í síðustu viku. Ráðstefnan var vel sótt, þátttakendur voru um 260. Dagskráin var fjölbreytt og endurspeglar það breidd þess rannsókna- og þróunarstarfs sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.
Á ráðstefnunni er kynntur hluti þeirra verkefna sem hljóta styrk úr Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar, en sá sjóður sér um úthlutun tilraunafjár sem samkvæmt vegalögum er um 1,5% af fjárveitingum til Vegagerðarinnar.
EFLA leggur áherslu á þátttöku í rannsóknum og nýsköpun og í ár kynntu starfsmenn EFLU sex verkefni sem fyrirtækið hefur unnið að fyrir Rannsóknarsjóð á þessu ári:
- Guðrún María Guðjónsdóttir og Baldvin Einarsson kynntu nýja nálgun í kostnaðaráætlunum fyrir vega- og brúagerð
- Daði Baldur Ottósson kynnti samanburð á ferðatíma Strætó og einkabílsins innan höfuðborgarsvæðisins
- Magnús Arason kynnti hvernig fella má brúarverkefni að hugmyndafræði hringrásarhagkerfa, verkefni unnið með Arup í Hollandi
- Daði Baldur Ottósson, Ásmundur Jóhannsson og Arna Kristjánsdóttir, kynntu greining á viðbragðstíma ökumanna, verkefni unnið með Akureyrarbæ
- Majid Eskafi kynnti nýja og sjálfbærari nálgun í skipulagi hafna, verkefni unnið með Háskóla Íslands
- Ragnar Gauti Hauksson og Andri Rafn Yeoman kynntu svonkallaða 2-1 vegi
Rannsóknarsjóður Vegagerðarinnar á þakkir skyldar fyrir gott samstarf í þessum verkefnum og á ráðstefnunni voru ræddar hugmyndir að nýjum rannsóknarefnum fyrir næstu ár.