Styrkir úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar

11.03.2021

Fréttir
A snow covered road leading into the distance under sunset sky

Rannsóknarsjóður Vegagerðarinnar veitti EFLU styrk til að vinna að 11 rannsóknarverkefnum á árinu.

Nýverið var úthlutað úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar og hlutu 11 verkefni frá EFLU styrk úr sjóðnum.

Nýsköpun og þróun er mikilvægur og sívaxandi þáttur í starfsemi EFLU og unnið er markvisst að margvíslegum rannsókna- og þróunarverkefnum á fjölbreyttum sviðum. Nýverið fékk EFLA samþykkt 11 verkefni fyrir tæplega 20 m.kr hjá rannsóknarsjóði Vegagerðinnar.

Rannsóknarsjóður Vegagerðarinnar

Á hverju ári auglýsir Vegagerðin eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna. Veittir eru styrkir sem fjármagnaðir eru af svonefndu tilraunafé sem er 1,5% af mörkuðum tekjum stofnunarinnar. Þetta árið fengu 66 verkefni styrk úr sjóðnum af 137 sem sóttu um.

Rannsóknarverkefni EFLU sem hlutu styrk úr sjóðnum eru af fjölbreyttum toga og taka á ólíkum viðfangsefnum en með því sameiginlega markmiði að afla nýrrar þekkingar og stuðla að aukinni gæðum vegakerfisins og samgangna á Íslandi. 

EFLA er afar þakklát styrknum sem veitir verkefnunum áframhaldandi brautargengi.

Eftirtalin verkefni hlutu styrk úr sjóðnum

  • Betri kostnaðaráætlanir í vegagerð
  • Brýr í hringrásarhagkerfi
  • Efla vöxt deilibíla á Íslandi með fjárhagslegum stuðningi
  • Grænar raforkulausnir fyrir vita byggðar á efnarafölum
  • Næmi veðurgilda CNOSSOS-EU
  • Samsetning og uppruni svifryks á Akureyri
  • Samspil þéttleika byggðar og umferðasköpunar í skipulagi
  • Samþætting ferða: almenningssamgöngur og deilirafskútur
  • Stauraundirstöður fyrir brýr
  • Tæring á hægryðgandi stáli við íslenskar aðstæður
  • Þróun á endafrágangi brúarmannvirkja til að lágmarka viðhald vega við brúarenda