Umhverfisvöktun iðnaðarsvæðis á Grundartanga
Norðurál, Elkem, Alur
EFLA hefur tekið saman niðurstöður umhverfisvöktunar iðnaðarsvæðiðsins á Grundartanga fyrir árið 2020. Norðurál, Elkem Ísland og Alur standa að vöktuninni sem fór fram samkvæmt umhverfisvöktunaráætlun sem gildir til ársins 2028.
-
EFLA hefur tekið saman niðurstöður umhverfisvöktunar iðnaðarsvæðiðsins á Grundartanga.
Markmiðið með vöktuninni er að meta þau áhrif á umhverfið sem starfsemin á iðnaðarsvæðinu við Grundartanga veldur.
Eftirfarandi þættir voru vaktaðir: loftgæði (andrúmsloft og úrkoma), ferskvatn, sjór við flæðigryfjur, klapparreitir, hey, gróður (gras, lauf og barr) og grasbítar (sauðfé og hross).
Niðurstöður umhverfisvöktunar iðnaðarsvæðisins á Grundartanga árið 2020 fyrir ferskvatn, gras, hey og sjó leiða í ljós að öll viðmiðunarmörk eru uppfyllt, sem sett eru í reglugerðum.
- Loftgæðamælingar fyrir flúoríð á Kríuvörðu mældust utan viðmiðunarmarka starfsleyfis. Aðrar mælingar á flúor eru innan starfsleyfismarka auk þess sem aðrar loftgæðamælingar í andrúmslofti uppfylla öll viðmiðunarmörk í reglugerðum
- Flúor í gróðri mældist undir þolmörkum gróðurs á öllum mælistöðvum
- Flúor í grasi mældist undir reglugerðamörkum um magn flúors í fóðri
- Ekki er sýnilegur skaði á fléttum sem rekja má beint til loftmengunar vegna brennisteins eða flúors
- Ekki er greinlegt samband á milli tannheilsu sláturfjár og styrk flúors í kjálkabeinum
- Áhrif flúors voru ekki greinanleg á tönnum eða liðum lifandi sauðfjár og hrossa
- Á síðustu tólf árum er stefna breytinga á flúorstyrk í fullorðnu fé til lækkunar en engin breyting er á magni flúors í lömbum