Greining myglusýna hjá EFLU
EFLA býður upp á greiningu myglusýna á rannsóknarstofum sínum í Reykjavík og á Akureyri. Þjónustan er ætluð fagfólki sem vinnur við úttektir og úrbætur vegna myglu og byggir á margra ára reynslu og sérfræðiþekkingu EFLU á sviði byggingarefna og umhverfisgæða.


Áreiðanleg greining sem styður við næstu skref
Mygla er tegundagreind niður á ættkvíslir sem veitir skýrar upplýsingar um umfang og eðli hennar. Niðurstöðurnar nýtast við mat á ástandi húsnæðis og styðja við ákvarðanir um næstu skref og úrbætur.
Helstu upplýsingar:
- Sýni er sent til EFLU í loftþéttum umbúðum með beiðni
- Mygla er tegundagreind niður á ættkvíslir með sjónskoðun í víðsjá og smásjá
- Viðskiptavinir fá ítarlega skýrslu um niðurstöður
- Greiningartími er að jafnaði innan við 10 virka daga
- Greining á einu sýni kostar 30.000 kr. með vsk
- Komi til frekari ráðgjafar um niðurstöður eða næstu skref er sú vinna unnin samkvæmt tímagjaldi

Rannsóknarstofur EFLU
Myglusýni eru greind á rannsóknarstofum EFLU í Reykjavík og á Akureyri. Með aðstöðu á tveimur stöðum getum við tekið á móti fleiri sýnum víðs vegar af landinu og boðið upp á skjótara greiningarferli.
Hvað felst í þjónustunni?
Sérfræðingar EFLU hafa um langt skeið greint byggingarefni vegna eigin verkefna. Nú býðst fyrirtækjum, stofnunum og fagaðilum að nýta sér sömu sérþekkingu og aðstöðu á rannsóknarstofum EFLU til greiningar á myglu í byggingarefnum.
Myglusýni eru skoðuð og greind með það að markmiði að veita áreiðanlegar upplýsingar um tegundir og umfang mygluvaxtar. Niðurstöðurnar nýtast við mat á ástandi húsnæðis og þegar ákveða þarf hvort og hvernig ráðast eigi í úrbætur.
Þegar greiningu lýkur fær viðskiptavinur skýrslu þar sem niðurstöður eru kynntar á skýran og aðgengilegan hátt. Einnig er hægt að óska eftir frekari ráðgjöf og túlkun niðurstaðna.

Fagmennska og áreiðanlegar niðurstöður
Fyllsta öryggis er gætt við meðhöndlun sýna á rannsóknarstofum EFLU. Þar er unnið samkvæmt skýrum verkferlum þar sem gæði, hreinlæti og rekjanleiki eru í fyrirrúmi.
Þrif og sótthreinsun á áhöldum og tækjum milli sýna eru hluti af daglegum vinnubrögðum sérfræðinga á rannsóknarstofunum. Þannig er dregið úr hættu á krossmengun og áreiðanlegar niðurstöður tryggðar.
Við leggjum sérstaka áherslu á fagmennsku, vönduð vinnubrögð og skýra miðlun niðurstaða svo viðskiptavinir geti tekið upplýstar ákvarðanir um næstu skref og mögulegar úrbætur
Hafa samband

Hafa samband
