Rannsóknarstofa EFLU

EFLA hefur starfrækt rannsóknarstofu frá árinu 1997. Þar eru framkvæmdar rannsóknir og prófanir á sviði steinsteypu, múrs, steinefna, jarðefna, umhverfis- og efnamælinga auk myglugreininga.

Sérfræðingar á rannsóknarstofu EFLU vinna að rannsóknum, prófunum og mælingum sem styðja við gæði, öryggi og hagkvæmni mannvirkja og framkvæmda með áreiðanlegum hætti. Við sinnum rannsóknum á steinsteypu, múr og jarðefnum, jarðtækniprófunum, efnagreiningum og vöktunarmælingum á vatni, auk sýnatöku og myglugreininga. Með áratuga reynslu, vel búinni aðstöðu og nánum tengslum við önnur sérfræðisvið EFLU veitum við heildstæða ráðgjöf og öruggar niðurstöður sem draga úr óvissu og áhættu í verkefnum viðskiptavina.
Þjónusta sem hægt er að treysta á
- Afgreiðslutími
Við afgreiðum sýni fljótt og örugglega
- Verð prófana
Verð liggur fyrir fyrirfram og fer eftir tegund prófana og umfangi verkefnis
- Magn sýna
Við leiðbeinum nákvæmlega um hvaða magn og tegund efnis þarf fyrir hverja prófun
Steinsteypa og múr
Á rannsóknarstofu EFLU er veitt ráðgjöf og þjónusta við verktaka og framkvæmdar prófanir og rannsóknir á efnum til steypugerðar ásamt steypu, sementi og steinefni.
Prófanir eru gerðar jöfnum höndum á ferskri sem og harðnaðri steypu. Meðal þess sem er skoðað er loft, sigmál, rúmþyngd, frost- og brotþol, klórmagn, fjaðurstuðull og fleira.
Jarðtækni og jarðefni
Sérfræðingar okkar framkvæma allar helstu prófanir og rannsóknir á sviði jarðtækni, bæði á setlögum og bergi. Við búum að áratuga reynslu af framkvæmd og stjórnun jarðtæknirannsókna þar sem við skoðum meðal annars kornastærð og kornarúmþyngd, gerum berggreiningar, athugum varmaleiðni, húmus, kleyfni og fleira.
Umhverfis- og efnarannsóknir
Sérfræðingar á rannsóknarstofu EFLU framkvæma alhliða vöktunarmælingar og efnagreiningar á vatni, t.d. í frárennsli matvælafyrirtækja, kælivatni iðnfyrirtækja og skolpfrárennsli frá sveitarfélögum. Jafnframt eru framkvæmdar greiningar á loftgæðum, raka og myglu í húsnæði, gasmælingar frá urðunarstöðum og mengun og næringarefnum í jarðvegi.
Greining á myglusýnum
EFLA býður upp á greiningu myglusýna. Þjónustan er ætluð fagfólki sem vinnur við úttektir og úrbætur vegna myglu og byggir á margra ára reynslu og sérfræðiþekkingu EFLU á sviði byggingarefna og umhverfisgæða.
Sýni eru greind til að kanna hvort þar finnist mygluvöxtur, gró, svepphlutar, örverur eða önnur efni sem gefa til kynna rakavandamál. Meðal þess sem er rannsakað eru öll almenn sýni, t.d. stroksýni, límbandssýni og sýni úr byggingarefnum.
Steypustöðin hefur átt mjög gott samstarf við rannsóknarstofu Eflu og reynslan okkar af þjónustu þeirra hefur verið afar jákvæð. Þar er mikil fagþekking til staðar og starfsfólkið sýnir metnað til að skila af sér góðu verki í öllum verkefnum sem þau sinna.
Vinnubrögð EFLU eru fagmannleg, skipulögð og traust, og samskipti hafa ávallt verið skilvirk og góð. Verkefni eru afgreidd af ábyrgð og með mikilli nákvæmni, sem skiptir okkur miklu máli í okkar starfsemi.
Við getum því með fullri vissu mælt með rannsóknarstofu EFLU sem öflugum og traustum samstarfsaðila.
Andri Jón Sigurbjörnsson
jarðfræðingur hjá Steypustöðinni
Hafa samband
Byggingarverkfræðingur M.Sc.
Jarðfræðingur M.Sc.
Jarðfræðingur M.Sc.


