Beint í efni

Skipulagsmál á Norðurlandi

Náttúra

Sveitarfélög þurfa að halda utan um fjölbreytt skipulagsverkefni, tryggja skýra stjórnsýslu og fylgja málum markvisst eftir. EFLA veitir sveitarfélögum á Norðurlandi aðgengi að staðbundnum skipulagsráðgjöfum og breiðri sérfræðiþekkingu.

Hafa samband
Vegur

Öflug ráðgjöf og gott utanumhald skipta máli þegar mörg og fjölbreytt skipulagsverkefni eru í gangi. EFLA leggur áherslu á náið samstarf, skýrar boðleiðir og aðgengi að fjölbreyttri sérfræðiþekkingu. Þannig geta sveitarfélög fengið þann stuðning sem þarf, hvort sem um er að ræða dagleg úrlausnarefni eða stærri verkefni til lengri tíma.

Þjónusta sem hægt er að treysta á

Sterkt bakland

Stuttar boðleiðir að öflugu teymi sérfræðinga styðja við skilvirka vinnu, vandaðar lausnir og trausta ráðgjöf.

Stuðningur í daglegum verkefnum

Sveitarfélög fá greiðan aðgang að skipulagsráðgjöfum sem geta brugðist við fjölbreyttum verkefnum og stutt við úrlausn mála.

Markviss eftirfylgni

Skýrt utanumhald og regluleg eftirfylgni hjálpa til við að tryggja samfellu og framgang verkefna.

Aðal- og deiliskipulag

Gott skipulag skapar skýra framtíðarsýn og styður við markvissa þróun sveitarfélagsins. EFLA aðstoðar við gerð og endurskoðun aðal- og deiliskipulags með hliðsjón af landnotkun, byggðaþróun og uppbyggingu innviða til framtíðar.

Þróun byggðar og breyttar forsendur

Þarfir samfélaga breytast og skipulagið þarf að geta þróast með þeim. EFLA aðstoðar við skipulagsbreytingar, þarfagreiningar og mat á tækifærum til uppbyggingar, meðal annars með því að skoða hvernig nýta megi land, lóðir og núverandi innviði betur.

Frá skipulagsstefnu til framkvæmda

Þegar deiliskipulag hefur verið samþykkt tekur við mikilvæg vinna við að hrinda ákvörðunum í framkvæmd. EFLA aðstoðar við framhaldsverkefni á borð við lóðablöð, merkjalýsingar, gatnahönnun og gerð útboðsgagna. Þannig skapast betri samfella frá skipulagsákvörðun til framkvæmda.

Merkjalýsingar

Merkjalýsingar eru mikilvægur þáttur við stofnun, breytingu og afmörkun fasteigna. EFLA veitir ráðgjöf og vinnur merkjalýsingar sem styðja við skýra afmörkun og skráningu landamerkja.

Loftmynd með upplýsingum.

Betri yfirsýn með Gagnalandi

Með Gagnalandi geta sveitarfélög safnað landupplýsingum á einn stað, stýrt aðgangi að þeim og miðlað upplýsingum á skýran og aðgengilegan hátt. Kerfið styður við skipulag, framkvæmdir, lóðamál og þjónustu við íbúa og auðveldar starfsfólki að nálgast mikilvæg gögn.

Gagnaland er miðlæg og aðgangsstýrð lausn fyrir landupplýsingagögn. Gögnunum má meðal annars miðla í kortavefsjá og nota til að sýna skipulag og framkvæmdir, veitulagnir, lausar lóðir, mæliblöð og ýmsa þjónustu við íbúa.

Nálæg ráðgjöf. Öflugt bakland.

Verkefni sveitarfélaga kalla oft á fleiri en eina tegund sérfræðiþekkingar. Skipulagsráðgjafar EFLU á Norðurlandi vinna þvert á faggreinar og geta kallað að borðinu sérfræðinga í samgöngum, veitum, umhverfismálum, landupplýsingum og öðrum þáttum eftir þörfum hvers verkefnis.

Þannig fá sveitarfélög staðbundið samband og greiðan aðgang að fjölbreyttri þekkingu innan EFLU.

Skipulagsráðgjöf fyrir sveitarfélög á Norðurlandi | EFLA