Umhverfi

Vatnstankur í Úlfarsfellshlíðum

Mosfellsbær, Veitur, Mannvirki

EFLA sá um alla verkfræðiráðgjöf fyrir nýtt veitumannvirki vatnsveitu Mosfellsbæjar. Mikil áhersla var lögð á að mannvirkið myndi falla vel í landslagið en framkvæmdin eykur rekstraröryggi vatnsveitunnar til muna.

Upplýsingar um verkefnið

Verkkaupi
Mosfellsbær

Verktími
2016-2021

Staðsetning
Úlfarsfelli í Mosfellsbæ

Tengiliður

Um hvað snýst verkefnið

Vatnstankurinn í Úlfarsfellshlíðum eykur rekstraröryggi vatnsveitunnar í Mosfellsbæ og heldur uppi viðeigandi þrýstingi fyrir efri byggðir. Tankurinn er 2000 m3 að stærð í einu hólfi en er hannaður þannig að hægt er að bæta við öðru jafn stóru hólfi síðar.

EFLA sá um alla verkfræðiráðgjöf fyrir alla þrjá áfanga verkefnisins. Í því fólst kerfisgreining vatnsveitu, for- og verkhönnun og gerð allra útboðsgagna. 

Umhverfismál

Mikil áhersla var lögð á að mannvirkið myndi falla vel inn í landslagið og verða fallegur hluti af útvistarsvæðinu í Úlfarsfelli. Við hönnun, frágang og landmótun voru þessi atriði höfð að leiðarljósi en að sama skapi var ávallt hugað að því að skerða ekki nauðsynlega aðkomu að þessu stóra veitumannvirki.

Hlutverk EFLU

EFLA kom að verkefninu á öllum stigum þess.

  • Kerfisgreiningar vatnsveitu og forathugun
  • Forhönnun
  • Verkhönnun
  • Landslagshönnun 
  • Útboðsgögn allra áfanga

Ávinningur verkefnis

Nýi vatnstankurinn kemur til með að auka rekstraröryggi vatnsveitunnar í Mosfellsbæ ásamt því að halda uppi viðeigandi þrýstingi fyrir efri byggðir.

Vatnstankur - Mosfellsbaer - Verkhönnun EFLAMynd tekin á framkvæmdartíma og hér sést inn í vatnstankinn.

Vatnstankur - Mosfellsbaer - Verkhönnun EFLAFulltrúar EFLU og vatnsveitu Mosfellsbæjar skoða nýja mannvirkið.

Vatnstankur - Mosfellsbaer - Verkhönnun EFLAHugað var sérstaklega að allri ásýnd mannvirkisins og að það félli vel inn í landslagið.

Vatnstankur - MosfellsbaerMannvirkið er útbúið nýjustu tækjum og stjórnkerfum.


Var efnið hjálplegt? Nei