Breyttur opnunartími

17.03.2020

Fréttir
A modern building with large windows and name "EFLA" on its facade

Höfuðstöðvar EFLU eru að Lynghálsi 4.

Opnunartími allra starfsstöðva EFLU tekur breytingum frá og með mánudeginum 23. mars og verður núna opið alla virka daga frá kl 8:00-16:00.

Breyttur opnunartími

Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu vegna Covid-19 hefur EFLA breytt opnunartíma sínum lítillega. Framvegis verður skrifstofan opin frá kl. 8:00-16:00 mánudaga til föstudaga í stað kl 8:00-17:00. Á þetta einnig við um allar starfsstöðvar fyrirtækisins á Norður-, Vestur-, Suður- og Austurlandi.

Töluvert af starfsfólki EFLU, sem það geta, hefur fært vinnustöð sína heim og sinnir verkefnum í fjarskiptum og á fjarfundum.

Starfsstöðvar fyrirtækisins eru þó opnar áfram en gerðar hafa verið ráðstafanir varðandi umgengni og öll samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila.

Við hvetjum viðskiptavini og aðra sem þurfa að ná í okkur að finna upplýsingar um starfsfólk og þjónustu okkar á vefnum sem alltaf er opinn. Einnig er velkomið að senda okkur tölvupóst.