Sérfræðingar EFLU hafa komið að hönnun nýs Búðafossvegar sem tengir Skeiða- og Gnúpverjahrepp við Rangárþing ytra. Verkefnið felur í sér gerð nýrrar brúar yfir Þjórsá sem Vegagerðin hannaði en EFLA sá um veglínu, vegamót og hringtorg. Stefnt er að því að brúin verði opnuð fyrir umferð árið 2029.
Styttir akstur og eykur öryggi
Framkvæmdin mun því hafa jákvæð áhrif á daglegt líf íbúa og atvinnurekstur á svæðinu. Þessi nýja leið mun stytta leiðina frá Árnesi að Landvegamótum um 14 kílómetra. Auk þess að stytta akstursleiðina eykur þessi nýja leið umferðaröryggi á þessu svæði því í dag þarf að fara allt að 78 kílómetra lengri leið til að komast milli svæðanna.
Áætlað er að umferð um nýjan Búðafossveg verði um 500 bílar á dag. Búðafossvegur verður 7,4 kílómetra langur með tveimur 3,5 metra breiðum akreinum og 0,5 metra öxlum beggja vegna og heildarbreidd vegarins verður átta metrar. Nýja brúin yfir Þjórsá verður 204 metra löng, tvíbreið stálbitabrú með steyptu gólfi og er 11 metrar á breidd.
