Alþjóðleg ráðstefna um snjó- og ofanflóðavarnir fer fram á Siglufirði 3-5 apríl. Fulltrúar frá EFLU eru á staðnum og flytja tvö erindi.
snjóflóðavarnir
Það er Verkfræðingafélag Íslands sem sér um skipulag ráðstefnunnar og er markmið hennar að miðla þekkingu um uppbyggingu ofanflóðavarna og þróun nýrra lausna víðsvegar í heiminum. Um 130 gestir sækja ráðstefnuna og koma alla leið frá Kanada í vestri og til Japans í austri.
Jón Skúli Indriðason, jarðverkfræðingur hjá EFLU, býr yfir áralangri reynslu af hönnun ofanflóðavarna. Hann flytur tvö erindi á ráðstefnunni sem fjalla um reynsluna á Íslandi af byggingu varnargarða með mismunandi aðferðum.
EFLA hefur unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði ofanflóðavarna og má þar helst nefna verkeftirlit með gerð snjóflóðavarnargarða á Flateyri og Siglufirði og verkhönnun varnargarða á Ísafirði, Bolungarvík, Patreksfirði og Neskaupstað.
- 1 / 3
Varnargarður á Flateyri.
- 2 / 3
Drangagilsgarður, varnargarður í Neskaupsstað.
- 3 / 3
Stóri-Boli, varnargarður á Siglufirði.