Beint í efni

EFLA og Klappir sameina krafta sína

13. október 2025

Fréttir
Konur á uppstilltri mynd.

Eva Yngvadóttir, sérfræðingur á samfélagssviði hjá EFLU, Hulda Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu hjá Klöppum, Helga J. Bjarnadóttir, sviðsstjóri samfélagssviðs hjá EFLU og Íris Rún Karlsdóttir, framkvæmdastjóri samstarfs hjá Klöppum.

EFLA hefur hafið samstarf við hugbúnaðarfyrirtækið Klappir. Markmið samstarfsins er að sameina hugbúnaðarlausnir Klappa og sérfræðiráðgjöf EFLU til að styðja fyrirtæki og stofnanir í sjálfbærniuppgjöri.

Með þessu samstarfi er ætlunin að veita viðskiptavinum alhliða þjónustu við utanumhald og uppgjör sjálfbærni í rekstri. Þannig má greina hvar tækifæri eru til að bæta rekstur með tilliti til kolefnisspors og annarra umhverfisáhrif

Yfirsýn og áratuga reynsla

Fyrirtæki standa frammi fyrir auknum lagalegum kröfum um upplýsingaskyldu varðandi stöðu sjálfbærnimála í rekstri. EFLA hefur yfir 30 ára reynslu af því að aðstoða viðskiptavini við að draga úr loftslagsáhrifum og öðrum neikvæðum áhrifum á umhverfið, og styðja þá við að ná markmiðum sínum á sviði sjálfbærni. Þjónusta EFLU á sviði upplýsingagjafar um sjálfbærni er víðtæk og nær til flestra þátta rekstrar.

Klappir er leiðandi hugbúnaðarfyrirtæki (SaaS) sem sérhæfir sig í að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að fylgjast með og stýra sjálfbærniframmistöðu sinni. Lausn Klappa veitir heildstæða yfirsýn yfir umhverfisgögn og gerir viðskiptavinum kleift að draga úr kolefnisspori sínu.

Víðtæk þjónusta

Sérfræðingar EFLU veita fjölbreytta ráðgjöf, meðal annars við innleiðingu stefnu um hringrásarhagkerfi til að takast á við loftslagsbreytingar með því að lágmarka auðlindanotkun, draga úr úrgangi og auka endurnýtingu og endurvinnslu. Þetta er gert með innleiðingu áætlana og stjórnkerfa sem hafa markviss og jákvæð áhrif á samfélag og umhverfi.

EFLA býður einnig ráðgjöf við gerð samgöngustefnu og aðgerða í tengslum við samgöngumál fyrirtækja, auk vistferilsgreininga og útreikninga á kolefnisspori fyrir vörur, þjónustu eða rekstur samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum stöðlum.

Þá aðstoðar EFLA sveitarfélög og fyrirtæki við að finna hagkvæmar lausnir í úrgangsmálum, umhverfisvöktun á loftgæðum, vatni, skólpi og jarðvegi, og veitir ráðgjöf á sviði fráveituhreinsunar, hönnunar veitukerfa, greiningu lagnakerfa, blágrænna ofanvatnslausna, flóðagreininga og veitumannvirkja.

Að meta kolefnisspor getur haft veruleg jákvæð áhrif á rekstur og dregið úr kostnaði. EFLA hefur áratugareynslu af gerð hússtjórnarkerfa sem nýtast til að fylgjast með orkunotkun og lækka rekstrarkostnað. Gæði atvinnuhúsnæðis skipta einnig miklu máli, og EFLA veitir sérhæfða ráðgjöf um heilnæm hús og innivist, auk þess að vera brautryðjandi í vistvænni hönnun og vottun bygginga hérlendis.

Alhliða stuðningur við fyrirtæki, stofnanir og sveitafélög

Með samstarfi EFLU og Klappa er stefnt að því að veita alhliða stuðning til viðskiptavina í öllu sem snýr að sjálfbærni í rekstri. Fyrirtæki sem vilja bæta sig á þessu sviði geta hagnast verulega ef vel er að verki staðið.

Sjálfbærni hefur verið samofin starfsemi EFLU í áratugi. Við leggjum áherslu á að skila lausnum sem bæta árangur viðskiptavina í sjálfbærnimálum. Við greinum loftslagsáhrif og önnur umhverfisáhrif yfir allan vistferil verkefna – frá hönnun og framkvæmd til reksturs – til að skila lausnum með lágmarks umhverfisáhrifum.

Nánar um sjálfbærniráðgjöf EFLU

Fjallað var um samstarfið á vef Viðskiptablaðsins.

EFLA og Klappir sameina krafta sína