Beint í efni

EFLA tekur þátt í að móta Blika­staða­land til framtíðar

21. janúar 2026

Fréttir
Teikning af Blikastaðalandi.

Fyrir tveimur árum hóf starfsfólk EFLU, í nánu samstarfi við Nordic Office of Architecture á Íslandi og SLA í Danmörku, tæknilega og þverfaglega vinnu við deiliskipulag fyrir fyrsta áfanga Blikastaðalands. Markmiðið með deiliskipulaginu hefur verið skýrt frá upphafi en það er að skapa nýtt hverfi þar sem náttúra, mannlíf og sjálfbær þróun styrkja hvert annað í stað þess að stangast á. Nú hefur tillagan verið sett í auglýsingu í Skipulagsgátt, sem er mikilvægt skref í uppbyggingu sunnan Mosfellsbæjar.

Teikning af Blikastaðalandi.

Náttúran fær forgang

Vinnan við deiliskipulagið í Blikastaðalandi hófst á því að lesa í landslagið og megináhersla var lögð á að hver íbúi hefði náttúruna í göngufjarlægð. Starfsfólk EFLU greindi vatnafar, vindafar, gróður og hæðarlínur svæðisins og mótaði skipulagið í samræmi við þau náttúrugæði sem þegar voru til staðar. Útkoman er náttúrumiðuð hönnun þar sem grænir geirar, lækir, votlendi og almenningsgarðar mynda samfellda vistkerfisheild sem umvefur allt hverfið.

Í fyrsta áfanga Blikastaðalands er gert ráð fyrir um 1.260 íbúðum ásamt skóla, verslun og þjónustu. Byggðin er skipulögð þannig að hún er þéttust við Blikastaðabæ og fyrirhugaða Borgarlínustöð en lækkar svo í átt að opnum svæðum og náttúru.

Þessi nálgun, sem EFLA hefur þróað í samvinnu við samstarfsaðila, tryggir betri birtuskilyrði, skjól fyrir vindi og sterkari tengingu við landslagið. Um leið skapast mannvæn rými sem styðja fjölbreytt mannlíf. Endurgerður Blikastaðabær mun gegna lykilhlutverki í nýju hverfi. Þar mætast almenningssamgöngur, þjónusta, skólastarf og útivist sem skapar lifandi miðju er tengir saman daglegt líf íbúa, vinnu, ferðavenjur og félagsleg rými.

Teikning af Blikastaðalandi.

Þverfagleg samvinna sem skilar raunverulegum áhrifum

EFLA hefur haft leiðandi hlutverk í hönnun samgöngu- og innviðalausna sem styðja sjálfbæra þróun. Öflugt stígakerfi, forgangur vistvænna ferðamáta og tenging við Borgarlínu skapa forsendur fyrir virkan og heilbrigðan lífsstíl. Skipulagið samræmist stefnumörkun Mosfellsbæjar, svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og kröfum BREEAM Communities-vistvottunar.

Þverfagleg samvinna hefur verið lykilatriði í verkefninu þar sem verkfræðingar, skipulagsfræðingar, umhverfissérfræðingar og samgönguhönnuðir hafa unnið saman að lausnum sem sameina tæknilega nákvæmni, sjálfbærni og framtíðarsýn.

EFLA tekur þátt í að móta Blikastaðaland til framtíðar