Nokkrir fulltrúar frá EFLU eru með erindi á Fagþingi Samorku í hita-, vatns- og fráveitum sem haldið er á Selfossi dagana 3. - 5. maí. Alls verða 70 fyrirlestrar á fagþinginu og er áætlað að um 220 gestir verði á svæðinu.
Erindi fulltrúa EFLU á fagþinginu eru eftirfarandi:
- Notkun flóðalíkana í innviðaverkefnum
Snærós Axelsdóttir
- Viðhaldsaðgerðir í dælustöðinni í Faxaskjóli – Millidæling
Reynir Snorrason
- Ofanvatnslausnir á skipulagsstigi
Elín Inga Knútsdóttir
- Eftirlit með eiturefnum
Eva Yngvadóttir
Fagþing Samorku um hita-, vatns- og fráveitu eru haldin á þriggja ára fresti.
Frekari upplýsingar um fulltrúa EFLU er að finna hér.