Gagnasöfnun með drónum rædd á EFLU-þingi

04.10.2018

Fréttir
A person presenting next to the slide about benefits for the business

EFLU-þing á Selfossi. Cathy Legrand segir frá verkefnum þar sem dróni var notaður við gagnasöfnun.

Föstudaginn 28. september fór fram EFLU-þing á Selfossi. Fjallað var um hvernig EFLA getur notað dróna til að kortleggja, ástandsgreina og skoða byggingar.

Sagt var frá því hvernig drónaflug geta gagnast sveitarfélögum, byggingarfyrirtækjum, veitum og arkitektum. Þannig er hægt að skoða mannvirki úr lofti, taka hágæða loftmyndir, útbúa kort og þrívíddarlíkön á nákvæman og hagkvæman máta. Gögnin nýtast á margvíslegan hátt, t.d. við ákvarðanatöku, gerð viðbragðsáætlunar, hönnun og skipulag svæða, umhverfismál og eftirlit.

Picture showing details of different aspects of drone operation

Þriggja þrepa ferill þjónustu á sviði gagnasöfnunar með dróna.

Áhersla lögð á þéttbýli og mannvirki

Starfsfólk EFLU á Suðurlandi hélt þrjú erindi og sögðu frá verkefnum sem hafa verið unnin á sviðinu. Að þessu sinni var lögð sérstök áhersla á að kynna verkefni með drónum sem hafa verið unnin í þéttbýli, í byggingum og á byggingarstað. Sýnt var frá verkefni þar sem gögnin voru keyrð inn í þrívíddarhugbúnað sem útbjó nákvæmar og raunhæfar útlitsmyndir af því.

Einnig voru tekin dæmi um byggingartengd verkefni þar sem hægt væri að njóta góðs af drónaflugi á mismunandi stigum þess t.d. með því að:

  • Safna landfræðilegum upplýsingum um hæðarlínur og punktaský
  • Áætla magntöku í jarðvegi
  • Fylgjast með framvindu verkefnis á mismunandi tíma
  • Vera með eftirlit á framkvæmdum á staðnum

Drónar EFLU voru til sýnis á staðnum en þeir eru notaðir í afar fjölbreytt verkefni. Allir drónar sem EFLA notar í verkefnum uppfylla starfsreglur Samgöngustofu.

Nánari upplýsingar um þjónustu EFLU á sviði gagnasöfnunar með drónum.