Granni 2020 tekinn í notkun hjá Hafnarfjarðarbæ

03.12.2019

Fréttir
A group of people standing together and posing for the picture

Hópur starfsmanna hjá EFLU og Hafnarfjarðarbæ hefur komið að þróun og framkvæmd verkefnisins. Á myndinni má sjá hluta af hópnum, t.v. þá Atla Frey Friðbjörnsson og Þorstein Helga Steinarsson frá EFLU, Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra fyrir miðju og t.h. Sigurjón Ólafsson sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs og Árdísi Ármannsdóttur samskiptastjóra.

Hafnarfjörður leggur mikla áherslu á stafræna þjónustu og miðlun fyrir íbúa bæjarins og aðra hagsmunaaðila. Sem lið í því ferli hefur bæjarvefsjáin og landupplýsingakerfið Granni verið tekið í notkun. EFLA sér um rekstur Granna og hefur síðustu mánuði unnið að nýrri og stórendurbættri bæjarvefsjá sem nú hefur litið dagsins ljós.

Á miðlægu og opnu svæði Granna er hægt að sækja hafsjó af upplýsingum varðandi skipulagsmál, starfsemi og þjónustu bæjarins.

Rafræn upplýsingamiðlun fyrir alla hagsmunaaðila

Með Granna - bæjarvefsjá er hægt að nálgast margvísleg gögn eins og teikningar húsa og lóða í bænum, deiliskipulag, hverfamörk, skólahverfi og minja- og verndarsvæði. Einnig er hægt að finna upplýsingar um ákveðna grunnþjónustu bæjarins eins og staðsetningu skóla, stofnana, leikvalla, sundlauga og grenndargáma. Þá er hægt að skoða skipulag vatnsveitu, hita- og fráveitu ásamt lagnaleiðum. Að auki eru uppdrættir frá byggingarfulltrúa settir í vefsjána um leið og þeir eru samþykktir og því fljótt aðgengilegir með einföldum hætti.

„Hér er um að ræða ánægjulegt skref í stafrænni vegferð okkar. Við erum hvergi nærri hætt og höldum áfram að þróa og móta Granna í góðu samstarfi við EFLU og notendur. Við höfum þegar tekið mikið af upplýsingum sem legið hafa í fylgiskjölum á okkar vef og gert þær upplýsingar meira lifandi í nýrri vefsjá. Markmiðið til framtíðar er að Granni verði rauntímaveita og að allar nauðsynlegar teikningar og helstu upplýsingar verði hýstar í bæjarvefsjánni“ segir Sigurjón Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs Hafnarfjarðar og einn þeirra sem setið hefur í starfshópi verkefnisins.

Notendavænn og miðlægur gagnagrunnur

Granni 2020 er landupplýsingakerfi og kortavefsjá frá EFLU fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki þar sem unnt er að miðla margvíslegum upplýsingum um byggingar, skipulag og rekstur. Vefsjáin er uppfærð daglega og tekur ætíð mið af nýjustu upplýsingum.

Satellite map of an area

Skjáskot úr Granna sem veitir hafsjó af upplýsingum um skipulagsmál og starfsemi Hafnarfjarðar.