EFLA býður upp á sérhæfða greiningu myglusýna á rannsóknarstofu sinni að Lynghálsi 4. Náttúrufræðistofnun, sem um árabil hefur greint flest myglusýni á Íslandi, hætti nýlega að bjóða upp á þessa þjónustu. EFLA hefur brugðist við með því að auka getu rannsóknarstofu sinnar í Reykjavík og á nýju ári verður opnuð ný rannsóknarstofa í starfsstöð EFLU á Akureyri.
Reynsla og sérþekking
Þjónustan er ætluð fagfólki sem vinnur við úttektir og úrbætur vegna myglu og byggir á margra ára reynslu og sérfræðiþekkingu EFLU á sviði byggingarefna og umhverfisgæða. Sérfræðingar EFLU hafa um árabil greint byggingarsýni með tilliti til myglu. Greiningar nýtast bæði við ákvarðanatöku um úrbætur og til staðfestingar á ástandi byggingarefna. Þær eru jafnframt mikilvægur hluti af ráðgjöf EFLU um heilnæma innivist.
Hvernig fer greiningin fram?
- Skoðun í víðsjá til að meta hvort mygla sé til staðar.
- Smásjárskoðun á hlutsýnum til að ákvarða tegundir og umfang.
- Myglan er tegundagreind niður á ættkvíslir, sem veitir skýra mynd af umfangi og alvarleika ástandsins.
Viðskiptavinir fá greinargóða skýrslu með niðurstöðum og, ef óskað er, ráðgjöf um túlkun og næstu skref.
Tímarammi og afgreiðsla
Greiningartími er að jafnaði innan við 10 virka daga frá móttöku sýnis til niðurstöðu. EFLA leggur áherslu á skjóta og örugga afgreiðslu. Sýni skulu sett í loftþéttan poka með tvöfaldri lokun og merkt með númeri sem samsvarar sýnalista verkkaupa.
Rannsóknarstofan starfar samkvæmt verklagsreglum sem tryggja stöðug gæði og endurtekningarhæfar niðurstöður. Áreiðanleiki byggir á fagmennsku og víðtækri reynslu sérfræðinga EFLU.
Hægt er að finna nánari upplýsingar um greiningu myglusýna hér.
