Beint í efni

Heilandi máttur nátt­úr­unn­ar​

2. desember 2025

Blogg
Gróður við strönd með hafið í baksýn.

Hjá EFLU byggir landslagshönnun á þeirri þekkingu að umhverfið sem við búum í hafi bein áhrif á líðan okkar. Náttúran hefur lengi verið tengd ró, vellíðan og heilsu, en á síðustu áratugum hefur umfangsmikil rannsóknarvinna staðfest að áhrif hennar eru bæði djúpstæð og mælanleg.

Þegar hönnun endurheimtir

Endurheimt í hönnun felur í sér að móta umhverfi sem gefur aftur orku í stað þess að taka hana frá fólki. Með því að nýta hugmyndafræði endurheimtar er hægt að skapa heilnæm rými sem styðja við bæði samfélag og einstaklinga og skila fólki og vistkerfum einhverju sem hefur tapast. Hönnun byggð á þessum grunni skapar tækifæri til að draga úr streitu, auka einbeitingu og hreyfingu og bæta líðan. Þetta er ekki óljós tilfinning heldur áratuga gagnreynd þekking sem hefur haft áhrif á allt frá sjúkrahúsahönnun til skipulags íbúðahverfa og vinnustaða.

Í rannsóknum á sviði umhverfissálfræði, lýðheilsu og hönnunar hefur endurtekið komið fram að tengingin við náttúru skiptir máli. Útsýni yfir grænt landslag getur flýtt bata, fjölbreyttur gróður stuðlar að andlegri endurheimt og rými með skýrum sérkennum náttúrunnar, kyrrð, fjölbreytni, skjól, yfirsýn og tengingu við menningu, hafa jákvæð áhrif á líðan og daglega orku fólks. Þessar niðurstöður eru ekki bundnar við tiltekna tegund gróðurs þó að rannsóknir bendi til að fjölbreytt, líflegt og tegundaríkt umhverfi hafi sterkust áhrif. Mikilvægt er að rýmið virki í heild, sem lifandi vistkerfi sem vekur hugann, róar og gefur tilefni til upplifunar.

Tré með bláan himinn í baksýn.

Landslagsarkitektar EFLU nýta þessa þekkingu í sínum verkefnum, þar sem náttúran, fræðin, listin og staðarandinn mætast. Teymið vinnur á þverfaglegan hátt með hönnuðum, arkitektum, sérfræðingum í heilsu og samfélögum til að tryggja að græn svæði verði ekki aðeins falleg heldur gagnleg. Með því að skoða hvernig fólk hreyfir sig, dvelur, hvílist og tengist umhverfinu er hægt að móta rými sem styrkja daglegt líf. Markmiðið er að skapa svæði sem eru aðgengileg öllum, örugg og hvetjandi, þar sem náttúran fær að njóta sín án þess að verða þvinguð í stífa ramma.

Græn svæði sem bæta líðan og samfélag

Þessi nálgun hefur áhrif langt út fyrir fagurfræði. Einfalt dæmi er hvernig stór, slétt grasflöt við íbúðablokkir, sem oft eru lítt nýttar og krefjast stöðugrar umhirðu, getur umbreyst í skjólgóð græn rými með trjám, fjölbreyttum gróðri og stígum sem hvetja til útiveru og samveru. Slíkar breytingar draga jafnframt úr viðhaldi og styðja við sjálfbærni.

Að hanna með endurheimt að leiðarljósi þýðir að setja heilsu fólks og náttúrunnar í forgrunn. Það þýðir að hlusta á notendur, virða staðaranda og byggja á þekkingu sem hefur sýnt fram á að græn svæði eru ekki munaður heldur nauðsyn. Með þessum aðferðum skapast umhverfi sem þjónar fólki, rými þar sem hugurinn fær að hvílast, líkaminn að endurnýja sig og samfélagið fær að vaxa.

Hundur liggur í gróðri við vatn.
EFLA - Heilandi máttur náttúrunnar​