Beint í efni

Heimsókn til HECLU í Frakklandi

26. janúar 2026

Fréttir
Starfsfólk HECLU ásamt fólki frá EFLU.

Kristín Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri EFLU, heimsótti í liðinni viku HECLU, dótturfélag EFLU í Frakklandi. Með henni í för var Guðmundur Þorbjörnsson, stjórnarformaður HECLU og starfsmaður í viðskiptaþróun hjá EFLU.

Styrkja tengslin

Starfsfólk HECLU tók vel á móti gestunum á skrifstofu fyrirtækisins í París, en heimsóknin er hluti af vegferð Kristínar til að kynnast starfsemi dótturfélaga fyrirtækisins betur.

Við þetta tilefni var einnig haldið upp á það að vörumerki HECLU og vefsíða voru nýlega uppfærð. Uppfært vörumerki byggir á útliti EFLU og með því er verið að styrkja tengsl fyrirtækjanna enn frekar.

HECLA gegnir mikilvægu hlutverki innan EFLU og hefur á undanförnum árum styrkt stöðu félagsins á sviði raforkuflutninga í Frakklandi og á alþjóðavísu. Guðmundur Þorbjörnsson hefur fylgt félaginu allt frá því að EFLA koma að stofnun þess árið 2001 og gegnir lykilhlutverki í stefnumótun og áframhaldandi þróun þess.

Heimsókn EFLU til HECLU í París – samstarf styrkt áfram