HECLA, dótturfélag EFLU í Frakklandi, hefur tekið í notkun nýja vefsíðu og hefur uppfært vörumerki félagsins. Breytingarnar byggja á merki og vefsíðu EFLU og eru liður í því að samræma stafræna ásýnd og styrkja tengsl milli fyrirtækjanna.
„Með nýju útliti og heimasíðu tekur HECLA næstu skrefin í langri og farsælli sögu félagsins. Nánari tengsl við móðurfélagið EFLU gefur aukinn styrk, enn meiri tækifæri til þróunar þjónustunnar við viðskiptavini og öflugri starfsvettvang,“ segir Guðmundur Þorbjörnsson, stjórnarformaður HECLU.
Styrkja tengslin
Vefsíða HECLU byggir á útliti og uppsetningu vefsíðu EFLU og tryggir þannig samræmi í framsetningu og notendaupplifun. Nýja vefsíðan tekur mið af þeim grunni sem EFLA hefur þróað og hlotið viðurkenningar fyrir, meðal annars Íslensku vefverðlaunin árið 2024. Sú vefsíða var unnin í miklu samstarfi við Hugsmiðjuna og Digido.
„Nýja vefsíðan og vörumerkið er meira en aðeins yfirhalning. Þetta er liður í því að styrkja tengsl okkar við viðskiptavini og samstarfsaðila. Með því að byggja á vefsíðu EFLU höfum við þróað vef sem er aðgengilegri og upplýsandi fyrir alla sem hafa áhuga á þjónustu og lausnum HECLU,“ sagði Christophe Baldet, framkvæmdastjóri HECLU.
Uppfært merki HECLU endurspeglar einnig þessa samræmingu. Vörumerkið byggir á merki EFLU sem var uppfært á síðustu misserum af Kolofon, hönnunarstofu, án þess að glata þeim einkennum sem hafa fylgt HECLA frá upphafi, t.a.m. að nota bláa litinn sem hefur einkennt HECLU frá upphafi.
Með því að tengja vefsíður og vörumerki HECLU og EFLU er markmiðið að tryggja samræmi og styrkja tengslin milli beggja fyrirtækja. Eitt af því sem sameinar EFLU-fjölskylduna er sérþekking starfsfólks á sviði orkuflutnings og hönnunar orkuflutningsmannvirkja. Sú þekking gengur þvert á landamæri. Þessi tenging HECLU við EFLU, bæði sjónrænt og stafrænt, undirstrikar mikilvægt hlutverk HECLA innan fjölskyldunnar.
Aðaleigandi frá 2022
HECLA SAS, sem er staðsett í París, sérhæfir sig í undirbúningi og hönnun orkuflutningsmannvirkja. Fyrirtækið var stofnað árið 2001 þegar fyrir lágu veruleg verkefni í uppbyggingu orkuflutningskerfa í Frakklandi.
HECLA er eitt af sex dótturfélögum EFLU og auk þess eru félög í Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Skotlandi og Póllandi.
