Beint í efni

Norræn reynsla styrkir þekkingu á jarðgöngum

15. október 2026

Fréttir
Interior of a tunnel with a well lit roadway

Hvernig getum við gert jarðgöng öruggari og betur undirbúin fyrir óvænt atvik? Sérfræðingar EFLU kynntu sér nýjar nálganir í öryggi, viðhaldi og rekstri jarðganga á árlegum fundi norræns vinnuhóps um jarðgöng í Flåm í Noregi. Reynslan frá nágrannaþjóðum getur nýst við áframhaldandi þróun jarðganga hér á landi.  

Jón Valgeir Halldórsson og Brynjar Bragason, sérfræðingar EFLU, tóku þátt í fundi NVF Tunnels Working Group dagana 22.–24. september. Þar koma saman sérfræðingar frá vegagerðum, ráðgjafarfyrirtækjum, rannsóknastofnunum og eftirlitsaðilum á Norðurlöndum til að miðla reynslu og þekkingu á hönnun, rekstri, viðhaldi og öryggi jarðganga.  

Öryggi snýst líka um að vita hvernig á að bregðast við

Eitt af því sem vakti athygli var færanleg þjálfunaraðstaða sem Norðmenn nota til að líkja eftir neyðaraðstæðum í jarðgöngum. Þar er hægt að fylla rými af reyk, prófa neyðarsíma og sjá um leið hvernig viðbrögðin birtast í stjórnstöð. Aðstaðan er bæði ætluð til fræðslu fyrir almenning og þjálfunar viðbragðsaðila. Meðal annars stendur til að fara með hana á milli skóla svo börn geti kynnst því hvernig bregðast eigi við neyðartilvikum í jarðgöngum. 

Brunaæfing var einnig hluti af dagskránni. Þar fengu þátttakendur að fylgjast með viðbragðsaðilum að störfum og sjá hversu lítið skyggni verður þegar jarðgöng fyllast af reyk.  

employee picture

„Það er mjög algengt að vegfarendur átti sig ekki á hversu mikill búnaður er í göngum, hvernig hann virkar og hvernig á að bregðast við í neyð,“

Jón Valgeir Halldórsson
  • Iðnaður og orka Norðurland

Hvað getum við lært af lengstu veggöngum heims?

Annar hápunktur ferðarinnar var heimsókn í Lærdalstunnelen, sem eru lengstu veggöng heims. Þar kynntu þátttakendur sér meðal annars loftræstingu ganganna.  En sérstök göng eru notuð til að leiða útblástur frá veggöngunum og þar er öflugum blásurum beitt við loftræstingu. 

Þátttakendur fengu einnig fræðslu um undirbúning á uppfærslu ganganna þar sem skipta á út öllum stjórn- og neyðarbúnaði ásamt því að breikka á þau á köflum.  

Í göngunum eru jafnframt hvelfingar með reglulegu millibili sem brjóta upp akstursleiðina og eru lýstar upp á sérstakan hátt. Að mati sérfræðinga EFLU má draga lærdóm af slíkum lausnum og því hvernig Norðmenn standa að undirbúningi endurbóta, sérstaklega þegar kemur að lengri jarðgöngum hér á landi.  

Norrænt samstarf skapar verðmæta þekkingu

Verðmæti funda sem þessara felst ekki eingöngu í því sem kynnt er á dagskránni. Þeir skapa einnig tengsl milli sérfræðinga sem glíma við sambærilegar áskoranir í mismunandi löndum.  

Fundurinn styrkir þannig norrænt samstarf sérfræðinga og gefur EFLU tækifæri til að fylgjast með því hvernig nágrannaþjóðir takast á við áskoranir í rekstri, viðhaldi og öryggi jarðganga. Sú reynsla getur síðan nýst við ráðgjöf, hönnun og áframhaldandi þróun samgöngumannvirkja á Íslandi. 

Kynntu þér þjónustu EFLU á sviði jarðganga
Norræn reynsla styrkir þekkingu á jarðgöngum