Þann 1. september 2025 tók í gildi nýtt ákvæði í byggingarreglugerð er snýr að vistferilsgreiningu (LCA) nýbygginga. Það kveður á um að vistferilsgreiningu (LCA), nánar tiltekið útreikningi á kolefnisspori bygginga, skuli skilað við umsókn um byggingarleyfi fyrir nýbyggingar í umfangsflokkum 2 og 3. Þessi breyting á byggingarreglugerð markar tímamót í íslenskri mannvirkjagerð, og er mikilvægt skref í átt að markmiði verkefnisins „Byggjum grænni framtíð,“ sem er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 43% fyrir árið 2030.
Áratuga reynsla
EFLA hefur verið leiðandi í vistferilsgreiningum á Íslandi og starfsfólk hefur yfir 25 ára reynslu af greiningum fyrir fjölbreytt mannvirki. Sérfræðingar EFLU hafa framkvæmt vel á annað hundrað greininga og veita ráðgjöf sem byggir á alþjóðlegum stöðlum. EFLA er því tilvalinn samstarfsaðili þegar kemur að því að uppfylla nýjar kröfur um vistferilsgreiningar nýbygginga og getur einnig tryggt að greiningarnar verði vandaðar, gagnlegar og hagnýtar.
Boðið er upp á heildstæða þjónustu sem nær yfir öll stig vistferilsgreininga:
Heildarumhverfisáhrif
Með því að vinna vistferilsgreiningu á nýbyggingum er hægt að meta heildarumhverfisáhrif mannvirkis yfir allan lífsferil þess. Lífsferill bygginga nær yfir allt frá hráefnisöflun og framleiðslu byggingarefna til niðurrifs. Með samræmdri aðferðafræði verða niðurstöður samanburðarhæfar og skapa grundvöll fyrir upplýsta ákvarðanatöku við byggingu mannvirkja og framtíðarinnleiðingu losunarviðmiða.
Ákvæði um vistferilsgreiningu nýbygginga hefur verið í aðlögunarferli frá því í mars 2024 og með þeirri reynslu kom í ljós að það mætti einfalda innleiðinguna. Nú verður einungis krafist skila á vistferilsgreiningum við umsókn um byggingarleyfi, en ekki við lokaúttekt eins og áður var gert ráð fyrir. Þessi nálgun veitir fagaðilum svigrúm til að tileinka sér aðferðafræðina og byggja upp færni þar til tvíþætt skil við umsókn og lokaúttekt verða innleidd á ný.
Hagnýtt verkfæri
Á Norðurlöndunum hefur sú þróun átt sér stað að sérstök áhersla er lögð á gæði gagna á hönnunarstigi og stigvaxandi innleiðingu losunarviðmiða. EFLA hefur lagt sig fram um að fylgja þessari þróun og því geta þeir viðskiptavinir sem nýta sér þjónustu sérfræðinga okkar í vistferilsgreiningu treyst á það að greiningin verði ekki einungis í samræmi við reglugerð, heldur einnig hagnýtt verkfæri til að bæta umhverfisárangur og draga úr kostnaði.
Nýtt ákvæði um vistferilsgreiningar nýbygginga í byggingareglugerð er mikið framfaraskref. Með því verða upplýsingar um losun mannvirkja sýnilegri, auðveldara verður að taka upplýstar ákvarðanir og skapa umhverfisvænni byggingar til framtíðar. EFLA er reiðubúin að þjónusta viðskiptavini í gegnum breytinguna með fagmennsku, reynslu og lausnamiðaða nálgun í fyrirrúmi.
Nánari upplýsingar um þjónustu EFLU varðandi vistferilsgreiningu.
