EFLA hefur opnað fyrir umsóknir um sumarstörf 2018 og er hægt að sækja um starf gegnum ráðningarvefinn.
Opið fyrir umsóknir um sumarstörf
Leitað er að efnilegum, hugmyndaríkum og metnaðarfullum háskólanemum í sumarstörf með framtíðarstarf í huga. EFLA leggur áherslu á að veita ungum starfsmönnum tækifæri til að axla ábyrgð í verkefnum og þróast í starfi.
Ráðnir verða sumarstarfsmenn á flest svið og starfsstöðvar fyrirtækisins.
Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með þær sem trúnaðarmál.