Sjálfbærni- og ársskýrsla EFLU fyrir árið 2025 var gefin út í vikunni í tengslum við aðalfund fyrirtækisins. Tíu ár eru liðin frá fyrstu útgáfu skýrslunnar en innihald hennar hefur þróast mikið frá því árið 2015.
Skýrslan inniheldur margs konar upplýsingar um starfsemi EFLU. Má þar nefna ársreikning félagsins fyrir árið 2025, hlutverk EFLU, árangur, viðburði, nýsköpun, samfélagslega ábyrgð, viðskiptahætti og menningu. Auk þess er þar að finna lykiltölur varðandi umhverfismarkmið og árangur, framlag EFLU til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og UFS samfélagsuppgjör.
Sem fyrr er það framkvæmdastjóri EFLU sem ritar inngangsorð skýrslunnar og er þetta í fyrsta skipti sem Kristín Friðgeirsdóttir, sem tók við sem framkvæmdastjóri EFLU á liðnu ári, er höfundur ávarps. Auk þess að tala um liðið ár, rekstur EFLU, mikilvægi mannauðsins og verkefni, kemur hún inn á gervigreind, óvissuna sem einkennir samtímann og innviðauppbyggingu.
„Orkuskiptin eru þar með talið á fleygiferð og áfallaþol er viðfangsefni með sífellt meira vægi í samfélögum. Þarna liggja skýr tækifæri fyrir EFLU til að nýta þá miklu þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp innan félagsins. Með samvinnu þvert á svið, svæði og dótturfélög getur EFLA lagt sitt af mörkum við mótun lausna sem mæta flóknum áskorunum samtímans og skapa varanlegt virði fyrir viðskiptavini og samfélög,” ritar Kristín í inngangi sínum.
Kolofon hönnunarstofa braut um skýrsluna og Kristín Viðarsdóttir sá um prófarkalestur.
