Sjálfbærni- og ársskýrsla 2025

Sjálfbærni- og ársskýrslur EFLU hafa verið gefnar út frá árinu 2015 og í þessum skýrslum má finna upplýsingar um árangur og framgang fyrirtækisins.
Þar er meðal annars sagt frá rekstri í starfseminni, mælanlegum markmiðum, verkefnum, samfélagsuppgjöri og birtar lykiltölur umhverfisþátta.

EFLA – stöðugleiki í breytilegu umhverfi
Árið 2025 hefur verið viðburðaríkt og krefjandi en jafnframt uppfullt af tækifærum. Umhverfi okkar mótast í auknum mæli af óvissu og örum breytingum. Pólitísk spenna, stríðsástand og efnahagslegur órói hafa áframhaldandi alþjóðleg áhrif og setja svip sinn á það umhverfi sem EFLA starfar í.
Rekstur EFLU var góður á liðnu ári. Niðurstaðan var í takt við metnaðarfullar áætlanir sem settar voru fram í krefjandi og breytilegu markaðsumhverfi. Ég tók við starfi framkvæmdastjóra EFLU um miðjan október 2025 og vil því í upphafi undirstrika að árangur ársins er afrakstur þess framúrskarandi starfs sem unnið var í félaginu allt árið. Það endurspeglar styrk EFLU að þrátt fyrir breytingar í forystu félagsins hélt reksturinn áfram að ganga vel með stöðugleika og fagmennsku að leiðarljósi.
Starfsfólk EFLU er grunnstoð allrar starfsemi félagsins. Þekking, hugvit og metnaður starfsfólks til að takast á við krefjandi verkefni liggja að baki þeim árangri sem félagið hefur náð. Starf EFLU byggir á skýrum gildum: hugrekki, samvinnu og trausti. Gildin móta daglegt starf, samskipti og ákvarðanatöku. Innan EFLU býr jafnframt sterkur sköpunarkraftur og vilji til að leita nýrra leiða, sem endurspeglast í stöðugri þróun, nýsköpun og getu félagsins til að mæta áskorunum framtíðarinnar.
Gervigreind heldur áfram að þróast á miklum hraða og hefur sífellt meiri áhrif á starfsemi fyrirtækja og samfélög. Sú þróun opnar mörg ný tækifæri en felur jafnframt í sér áskoranir sem kalla á meðvitaða og ábyrga nálgun. Mikilvægt er að vera virkur þátttakandi í þessari öru framþróun, þora að gera tilraunir og vera tilbúinn að laga sig að breyttum aðstæðum. Með öflugu, forvitnu og metnaðarfullu starfsfólki er EFLA vel í stakk búin til að innleiða nýjar lausnir og þróa vinnubrögð sem skapa virði, bæði innan félagsins og fyrir viðskiptavini. Sú nálgun er jafnframt í samræmi við skilgreint hlutverk EFLU, að koma fram með lausnir sem stuðla að framförum hjá viðskiptavinum og efla samfélög.
Með samvinnu þvert á svið, svæði og dótturfélög getur EFLA lagt sitt af mörkum við mótun lausna sem mæta flóknum áskorunum samtímans og skapa varanlegt virði fyrir viðskiptavini og samfélög.

Í verkefnum EFLU eru sjálfbærni og samfélagsleg sjónarmið samþætt frá upphafi, hvort sem um ræðir orku-, innviða- eða mannvirkjaverkefni, með það að markmiði að skila vönduðum og varanlegum lausnum. Með heildstæðri nálgun leitast félagið við að styðja ábyrga nýtingu auðlinda, tryggja gæði og skapa jákvæð áhrif til lengri tíma og leggja þannig sitt af mörkum til framfara hjá viðskiptavinum og þeim samfélögum sem EFLA starfar í.
Á þessum óvissutímum blasir reyndar við tímabær og nauðsynleg innviðauppbygging, bæði hér á landi og á erlendum mörkuðum. Orkuskiptin eru þar með talið á fleygiferð og áfallaþol er viðfangsefni með sífellt meira vægi í samfélögum. Þarna liggja skýr tækifæri fyrir EFLU til að nýta þá miklu þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp innan félagsins. Með samvinnu þvert á svið, svæði og dótturfélög getur EFLA lagt sitt af mörkum við mótun lausna sem mæta flóknum áskorunum samtímans og skapa varanlegt virði fyrir viðskiptavini og samfélög.
Að lokum vil ég færa starfsfólki EFLU einlægar þakkir fyrir framúrskarandi framlag á árinu. Jafnframt er ég þakklát fyrir hlýjar móttökur, traust og stuðning og hlakka til áframhaldandi samstarfs við að byggja enn frekar undir árangur EFLU á komandi árum
Kristín Friðgeirsdóttir Framkvæmdastjóri EFLU hf