Beint í efni

Árangur

Hér má sjá yfirlit þeirra tilnefninga, viðurkenninga og styrkja sem EFLA hefur hlotið á árinu sem leið og endurspegla árangur fyrirtækisins

Tvær manneskjur með viðurkenningarskjal.

Framúrskarandi fyrirtæki

Á árinu 2025 var EFLA valið framúrskarandi fyrirtæki 16. árið í röð, samkvæmt mati Creditinfo. Þetta er einstakt afrek sem staðfestir stöðugan árangur og faglega forystu EFLU á íslenskum verkfræðimarkaði. Viðurkenningin er byggð á ströngum skilyrðum sem taka mið af fjárhagslegri stöðu, árangri, stöðugleika og trausti viðskiptavina. Á árinu 2025 voru alls 1.136 fyrirtæki metin og hlutu viðurkenningu, en EFLA náði hæstu einkunn í sínum atvinnugreinaflokki.

Á heildarlista allra fyrirtækja var EFLA í 49. sæti, en í 1. sæti meðal fyrirtækja sem sinna sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi.

Nánari upplýsingar

Kona með viðurkenningarskjal.

Steinsteypuverðlaunin 2025

Nýr Landsbanki

Bygging nýs Landsbanka hlaut Steinsteypuverðlaunin 2025 fyrir hönnun og ráðgjöf. EFLA kom að ráðgjöf og þjónustu á öllum stigum verkefnisins, allt frá skipulagi og verkfræðihönnun til eftirlits, BREEAM umhverfisvottunar og gæðastjórnunar framkvæmda.

Nánari upplýsingar

Hópur á uppstilltri mynd.

Íslensku hljóðvistarverðlaunin

Leikskólinn Aldan á Hvolsvelli

Starfsfólk EFLU sá um hljóðhönnun leikskólans Öldunnar á Hvolsvelli, sem hlaut Íslensku hljóðvistarverðlaunin. Verkefnið fól í sér að hanna hljóðumhverfi sem eykur vellíðan barna og starfsfólks með áherslu á heilsusamlegt, þægilegt og öruggt rými. Sérfræðingar EFLU sameinuðu verkfræði, innanhúss- og hönnunarnálgun ásamt notendamiðaðri nálgun til að tryggja að hljóðvist væri bæði faglega rétt og hvetjandi fyrir leik og nám.

Nánari upplýsingar

Kona með viðurkenningarskjal.

Jafnvægisvog FKA

EFLA hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA þriðja árið í röð fyrir að hafa jafnað kynjahlutfall í framkvæmdastjórn félagsins. Í stjórn EFLU sitja jafnmargar konur og karlar, sem tryggir jafnrétti í ákvörðunartöku.

Nánari upplýsingar

EFLA - Árangur | Sjálfbærni- og ársskýrsla