Umhverfismarkmið og árangur
EFLA starfar samkvæmt gæða-, umhverfis- og vinnuverndarstefnu og hefur sett sér markmið um að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfseminnar með stöðugum úrbótum.

Hér verður fjallað um kolefnisspor, mikilvæga umhverfisþætti og umhverfisárangur EFLU í rekstri fyrirtækisins á Íslandi.
Árið 2015 setti EFLA sér loftslagsmarkmið fyrir ákveðna þætti í rekstrinum og er stefnan að starfsemi EFLU verði kolefnishlutlaus fyrir árið 2030. Til viðbótar við fyrrgreind markmið hefur EFLA einnig sett sér markmið í tengslum við aðra, svo sem úrgang og orkunotkun. Umhverfisstjórnun EFLU nær til allrar starfsemi fyrirtækisins á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð, hvort sem um ræðir daglegan rekstur á skrifstofum, rannsóknarstofum eða í ráðgjafarþjónustu.
Árið 2025, náði EFLA markmiði sínu um lækkun kolefnisspors, lækkun á heildarmagni úrgangs og notkunar á vatni og rafmagni. Hins vegar náði EFLA ekki markmiði um flokkunarhlutfall úrgangs í höfuðstöðvum fyrirtækisins. Öll aðstaða er fyrir hendi til flokkunar og mun fyrirtækið halda áfram að leggja áherslu á fræðslu til starfsmanna um þennan umhverfisþátt og upplýsa reglulega um árangurinn.
Markmið og árangur EFLU, á Íslandi, í umhverfismálum fyrir árið 2024 voru:
Lækkun kolefnisspors EFLU
Kolefnisjöfnun
Minnkun úrgangs í höfuðstöðvum EFLU
Magn úrgangs á hvert stöðugildi í höfuðstöðvum EFLU
Árangur EFLU í umhverfismálum árið 2025
- 70%Lækkun án t.t. kolefnisbindingar, miðað við árið 2015.
- 88KgHeildarmagn úrgangs í höfuðstöðvum á hvert stöðugildi.
- 44kgLífrænn úrgangur á hvert stöðugildi í höfuðstöðvum.
Orkunotkun
Rafmagnsnotkun höfuðstöðvanna var 106 kWst á hvern fermetra húsnæðis árið 2025 sem er 2% lækkun frá fyrra ári og er innan settra markmiða (105 ± 5% kWst á hvern fermetra húsnæðis). Heitavatnsnotkunin var 1,26 m3 á hvern rúmmetra húsnæðis sem er 65% hækkun miðað við árið 2024 og er við efri mörk settra markmiða (1,2 ± 5% m3 á hvern rúmmetra húsnæðis).
Raforka
Raforkunotkun miðað við nettóflatarmál húsnæðis í starfsemi EFLU
Heitavatnsnotkun á starfsstöðvum EFLU jókst um 39% á milli áranna 2024 og 2025, úr 0,87 m3/m3 í 1,21 m3/m3. Meginástæðan fyrir þessari hækkun er veruleg aukning í notkun höfuðstöðvanna, þar sem notkunin jókst um 65% milli ára. Rekja má þessa hækkun til aukinnar upphitunar rýma á Lynghálsi sem áður voru óupphituð vegna bilunar í eftirhiturum í loftæstikerfi. Notkun á Lynghálsi vegur þungt en hún er um 85% af allri heitavatnsnotkun starfsstöðva EFLU.
Vatnsorka
Úrgangur
EFLA leggur áherslu á flokkun úrgangs til að tryggja að sem mestur hluti skili sér til endurvinnslu. Úrgangur sem fer til endurvinnslu er m.a. pappír, pappi, plast og málmar. Allur lífrænn úrgangur sem myndast í höfuðstöðvum EFLU er flokkaður sér og sendur til GAJU, sem er gas- og jarðgerðarstöð SORPU. Almennur úrgangur frá starfsemi EFLU er að mestu leyti sendur til brennslu erlendis, þar sem hann nýtist sem hráefni til orkuvinnslu, en lítill hluti fer í urðun hér á landi. Heildarmagn úrgangs frá allri starfsemi EFLU var um 43 tonn árið 2025 sem er um 9% hækkun frá árinu á undan en þá var magnið 40 tonn. Þar af eru um 11 tonn steinefni frá rannsóknarstofu EFLU en í eftirfarandi umræðu verður ekki tekið tillit til steinefna. Hlutfall úrgangs sem fór í endurvinnslu eða aðra endurnýtingu var um 98% en um 2% fór í förgun, s.s. urðun eða brennslu spilliefna. Tæplega 80% af öllum úrgangi frá starfsemi EFLU er uppruninn í höfuðstöðvum EFLU.
Heildarmagn úrgangs frá höfuðstöðvum EFLU var tæplega 36 tonn árið 2025 og þar af 11 tonn steinefni (undanskilin í eftirfarandi umræðu). Flokkunarhlutfall úrgangs frá EFLU, þ.e. hlutfall úrgangs sem fer ekki í blandaðan úrgang, var um 79% sem er undir flokkunarmarkmiði fyrirtækisins, en það er 90%. Hins vegar var hlutfall endurheimts úrgangs 99% á móti 1% úrgangs sem fór í urðun. Magn úrgangs á hvert stöðugildi í höfuðstöðvum EFLU var 88 kg/stöðugildi sem er 18% aukning frá fyrra ári, sem tengist tiltekt innan fyrirtækisins. Markmið EFLU er að draga úr magni úrgangs án steinefna um 3% á ári miðað við árið 2019. Markmiðið fyrir árið 2025 var því 18% lækkun samanborið við 2019. Það markmið náðist, þar sem magn úrgangs hefur minnkað um 21% miðað við árið 2019.
Magn úrgangs frá höfuðstöðvum (án steinefna)
Lífrænn úrgangur frá höfuðstöðvum
Akstur og flug
Á undanförnum árum hefur akstur og flug sem tengist starfsemi EFLU minnkað. Þetta er einkum vegna aukins svigrúms hjá starfsfólki, s.s. vegna fjarvinnu og fjarfunda. EFLA leggur áherslu á að skapa starfsfólki góða aðstöðu til samskipta í gegnum veraldarvefinn með því að hafa til staðar góðan fjarfundarbúnað. Fjöldi flugferða erlendis var 108 og fjöldi innanlands var 315 á árinu, samanborið við 179 og 365 árið á undan.
EFLA starfar samkvæmt eigin samgöngustefnu og samgönguáætlun og vill þannig stuðla að minni mengun, heilbrigðari lífsháttum og bættri borgarmynd. EFLA hvetur starfsfólk til að ferðast til og frá vinnu með vistvænum fararmátum og styður við það með ýmsum hætti. Starfsfólk getur m.a. fengið samgöngustyrk ef 40% eða 80% ferða til og frá vinnu eru farnar gangandi, hjólandi eða með almenningssamgöngum. EFLA býður starfsfólki sínu einnig að nýta sér að kostnaðarlausu rafskútur Hopp, milli klukkan 7 og 18 á virkum dögum, sem það getur einnig nýtt í vinnutengdar ferðir. EFLA á einnig rafhjól sem starfsfólk getur notað, auk þess sem starfsfólki býðst fjórar ferðir með Strætó á mánuði.
Bein og óbein losun ferðamáta
Starfsfólk EFLU hefur aðgang að 36 bifreiðum á vinnutíma. Þar af eru 42% rafmagnsbílar, eða 15 talsins, sem er sami fjöldi og árið 2024.
Bein losun GHL frá starfsemi EFLU, umfang 1, tengist bruna eldsneytis á bifreiðum sem starfsfólk EFLU hefur aðgang að. Eldsneytisnotkun (bensín og dísel) á bílum í rekstri EFLU var um 12,9 þúsund lítrar árið 2025, samanborið við um 14,9 þúsund lítra árið á undan. Þessi notkun samsvarar um 30 tonnum af CO2-ígildum eða um 77 kg CO2-ígilda á hvert stöðugildi, sem er um 22% lækkun frá því árinu á undan. Hlutfall rafmagnsbíla hélst óbreytt milli ára. Notkun bifreiðanna ræðst fyrst og fremst af umfangi verkefna EFLU hverju sinni.
Tilfallandi notkun bílaleigubifreiða á vegum EFLU tengist verkefnum EFLU sem eru dreifð um allt land. Í ákveðnum tilfellum þarf starfsfólk því að nýta sér bílaleigubifreiðar og er notkun hverju sinni háð eðli og staðsetningu verkefna. Losun vegna bílaleigubifreiða var metin út frá kílómetrastöðu þeirra og viðeigandi losunarstuðlum. Losun vegna þeirra árið 2025 samsvarar um 6,0 tonnum af CO2-ígildum eða 16 kg CO2-ígilda á hvert stöðugildi, sem er 31% hækkun á hvert stöðugildi á milli ára. Á árinu skiptist akstur bílaleigubíla þannig að 59% ekinna kílómetra voru á bílum knúnum jarðefnaeldsneyti, 33% á tvinnbílum og 8% á rafmagnsbílum.
Í sumum tilfellum nýtir starfsfólk eigin bifreiðar í ferðir á fundi og verkstaði. Notast var við niðurstöður reglubundinnar ferðavenjukönnunar við mat á samsetningu bílaflota starfsfólks EFLU. Miðað við samsetningu bílaflotans er áætluð losun fyrir árið 2025 um 29 tonn CO2-ígilda eða 76 kg CO2-ígilda á hvert stöðugildi, sem er um 37% lækkun frá fyrra ári. Árið 2025 ók um 24% starfsfólks á rafmagnsbílum og 11% á tvinnbílum (hybrid) og fjölgar vistvænum bílum jafnt og þétt. Frá árinu 2018 hefur hlutfall rafmagnsbíla aukist úr 7% í 24%.
Samkvæmt árlegri ferðavenjukönnun EFLU er losun GHL vegna aksturs starfsfólks til og frá vinnu um 104 tonn CO2-ígilda árið 2025 eða 271 kg CO2-ígilda/stöðugildi sem er 16% hækkun samanborið við 2024.
Losun GHL vegna flugferða starfsfólks EFLU minnkaði verulega milli áranna 2024 og 2025. Losun vegna innanlandsflugs lækkaði um 12% á hvert stöðugildi og nam um 87 kg CO2-ígilda á stöðugildi árið 2025. Losun vegna flugferða erlendis dróst einnig saman og var 94 kg CO2-ígilda á stöðugildi árið 2025, sem jafngildir 40% lækkun frá fyrra ári. Þessi samdráttur í losun skýrist af færri flugferðum bæði innanlands og erlendis. Erlendar flugferðir voru 40% færri en árið á undan og innanlandsferðum fækkaði um 24%.
Hlutfallsleg losun CO2 m.v. ferðamáta árið 2024
Aðrir þættir í starfsemi EFLU sem valda óbeinni losun
Í þessari skýrslu eru birtar upplýsingar um fleiri losunarþætti sem eiga við um óbeina losun GHL vegna starfsemi EFLU og tengjast umfangi 3. Hér er um að ræða losun vegna kaupa á nýjum raftækjum, losun vegna innkaupa á matvöru í mötuneyti í höfuðstöðvum EFLU og fleira.
Lagt var mat á kolefnisspor þeirra raftækja sem keypt voru ný á árinu 2025, þ.e. farsíma, fartölva, borðtölva og tölvuskjáa. Upplýsingar um kolefnisspor tækjanna (framleiðsla, dreifing, notkun og förgun) voru fengnar úr vottuðum umhverfisyfirlýsingum frá framleiðendum. Samanlagt kolefnisspor þeirra tækja sem keypt voru á árinu er um 46 tonn CO2-ígildi, eða um 119 kg CO2-ígildi á hvert stöðugildi. Þetta jafngildir um 64% minni losun á stöðugildi en árið 2024, sem tengist breytingu á innkaupum þar sem nýr birgir var valinn með kolefnisspor tækja að leiðarljósi.
Lagt var mat á kolefnisspor þeirra raftækja sem keypt voru ný á árinu 2025, þ.e. farsíma, fartölva, borðtölva og tölvuskjáa. Upplýsingar um kolefnisspor tækjanna (framleiðsla, dreifing, notkun og förgun) voru fengnar úr vottuðum umhverfisyfirlýsingum frá framleiðendum. Samanlagt kolefnisspor þeirra tækja sem keypt voru á árinu er um 46 tonn CO2-ígildi, eða um 119 kg CO2-ígildi á hvert stöðugildi. Þetta jafngildir um 64% minni losun á stöðugildi en árið 2024, sem tengist breytingu á innkaupum þar sem nýr birgir var valinn með kolefnisspor tækja að leiðarljósi.