Kolefnisspor
Við útreikninga á kolefnisspori notar EFLA aðferðafræði Greenhouse Gas Protocol. Skipta má kolefnisspori frá rekstri fyrirtækisins í tvo hluta, beina losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) og óbeina losun GHL.

Bein losun (umfang 1) er öll losun sem fyrirtækið veldur sjálft og hefur stjórn á. Í tilfelli EFLU tengist bein losun GHL bruna eldsneytis við notkun bifreiða í rekstri EFLU. Óbein losun er sú losun GHL sem á sér stað annars staðar í virðiskeðjunni og skiptist í tvo þætti, umfang 2 og umfang 3. Óbein losun EFLU í umfangi 2 er losun GHL vegna notkunar á rafmagni og heitu vatni. Óbein losun EFLU í umfangi 3 eru aðrar uppsprettur losunar vegna aksturs starfsfólks á eigin bílum og bílaleigubílum á vegum EFLU, losun vegna flugs starfsfólks og meðhöndlun úrgangs. Framangreindir þættir eru þeir þættir sem tekið var tillit til þegar loftslagsmarkmið fyrirtækisins voru sett árið 2015, sem er viðmiðunarár markmiða EFLU. Til viðbótar við þá þætti sem eru inni í loftslagsmarkmiðum EFLU, upplýsir EFLA einnig um losun annarra þátta í umfangi 3, s.s. vegna aksturs starfsfólks til og frá vinnu, matarinnkaupa, innkaupa á raftækjum og vegna árshátíðar erlendis þegar það á við. EFLA styðst við losunarstuðla frá Umhverfis- og orkustofnun við útreikning á losun gróðurhúsalofttegunda, þegar það á við. Til viðbótar nýtir fyrirtækið hugbúnaðarlausnirnar Eldar og Klappir, sem og umhverfisyfirlýsingar raftækja (e. Environmental Product Declarations, EPD) þegar þær liggja fyrir. Einnig eru notaðar aðrar viðeigandi reiknivélar, til dæmis fyrir flug, eftir því sem við á. Árið 2025 nam losun gróðurhúsalofttegunda 166 tonn CO2-ígilda eða 0,43 tonnum CO2-ígilda á hvert stöðugildi, sem er um 70% lækkun frá árinu 2015 (1,43 CO2-ígildi/stöðugildi), viðmiðunarári fyrir loftslagsmarkmið EFLU. Markmið ársins 2025 var að halda kolefnisspori á hvert stöðugildi undir 1,00 tonnum CO2-ígilda og var EFLA langt undir því markmiði. Losun ársins var 26% lægri en losun ársins 2024 og tengist það aðallega minni losun vegna aksturs starfsmanna á vegum vinnunnar og flugs bæði innanlands og erlendis
EFLA leggur ríka áherslu á að auka upplýsingagjöf varðandi losun í umfangi 3. Þegar loftslagsmarkmið EFLU voru sett árið 2015, var í umfangi 3 tekið tillit til þeirra þátta sem losunargögn lágu fyrir um. Nú eru til staðar upplýsingar fyrir fleiri þætti sem eiga við um umfang 3, svo sem akstur starfsfólks til og frá vinnu, raftæki (tölvur, skjáir og símar), innkaup á matvöru í mötuneyti í höfustöðvum EFLU og árshátíðarferð til Króatíu. Losun tengd þessum þáttum var um 708 tonn eða um 1,8 tonn CO2-ígilda á hvert stöðugildi, sem er hækkun um 87% á milli ára miðað við 1,0 tonn CO2-ígilda á hvert stöðugildi árið 2024. Aukning milli ára skýrist aðallega af losun vegna árshátíðarferðar en hún er um 65% af losun þessara þátta, en árið 2024 var árshátíðin haldin á Íslandi. Losun vegna annarra þátta, s.s. aksturs starfsmanna til og frá vinnu, kaupa á raftækjum og matarinnkaupa lækkaði á milli ára
- * Árið 2015 er viðmiðunarár.
- ** Framleiðendur raftækja kolefnisjafna hluta framleiðslunnar.
- *** Leiðréttingar hafa verið gerðar og gögn hafa verið uppfærð afturvirkt í ljósi nýrra upplýsinga.
Hlutfallsleg losun GHL, umfang 1,2 og 3 eins og það var sett fram grunnárið 2015
Hlutfallsleg losun, umfang 1,2 og 3 og aukið umfang 3
Losun GHL í rekstri EFLU, umfang 1,2,,3 eins og það var sett fram árið 2015
Losun GhHL í rekstri EFLU umfang 1, 2 og aukið umfang 3
