Beint í efni

Samfélagsleg ábyrgð

Áhersla EFLU á samfélagslega ábyrgð hefur vaxið jafnt og þétt og er nú orðin rauður þráður í stefnumiðun fyrirtækisins.

Grænn gróður, tvær plöntur í forgrunni og strá, laufblöð úr fókusi í bakgrunni

Global Compact sáttmáli Sameinuðu þjóðanna

EFLA skrifaði undir Global Compact-sáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 2015 og skuldbatt sig þannig til að fylgja þeim tíu grundvallarviðmiðum sáttmálans um samfélagslega ábyrgð sem snúa að mannréttindum, vinnumarkaði, umhverfi og baráttu gegn spillingu.

Ársskýrsla EFLU inniheldur upplýsingar um árangur fyrirtækisins í samræmi við viðmið Global Compact. Áhersla fyrirtækisins á samfélagslega ábyrgð hefur vaxið jafnt og þétt og er rauður þráður í stefnumiðun þess sem og áhersluþáttur í þeirri ráðgjöf sem fyrirtækið veitir út á við.

Festa, miðstöð um sjálfbærni

EFLA er aðili að Festu, miðstöð um sjálfbærni, og skrifaði undir sameiginlega yfirlýsingu íslenskra fyrirtækja og stofnana um markmið í loftslagsmálum í nóvember 2015. EFLA skuldbindur sig til að taka þátt í hvatningu um ábyrgð í umhverfismálum heimsins og fylgir loftslagsstefnu sem hefur það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og minnka myndun úrgangs.

Nordic Built og Grænni byggð

EFLA var fyrsta verkfræðistofan á Íslandi sem skrifaði undir sáttmála Nordic Built. Sáttmálinn hvetur til þróunar á samkeppnishæfum lausnum í vistvænni mannvirkjagerð. Markmið Nordic Built er að fá byggingariðnaðinn til að sameinast um að nýta sérþekkingu sína til að mæta aukinni eftirspurn eftir vistvænni mannvirkjagerð í heiminum og vera leiðandi í nýsköpun, grænum hagvexti og velferð. EFLA er einnig stofnaðili og þátttakandi í stjórn sem og virkur félagi í félagasamtökum Grænni byggðar, sem er vettvangur um sjálfbæra þróun byggðar með það að markmiði að lágmarka umhverfisáhrif frá mannvirkjagerð, rekstri og niðurrifi

Samfélagssjóður

Samfélagssjóður EFLU veitir styrki til uppbyggjandi og jákvæðra verkefna sem nýtast samfélaginu. Umsóknir eru metnar út frá markmiðum sjóðsins, markmiðum EFLU og áherslum valnefndarinnar hverju sinni.

Votlendissjóður

EFLA er einn af stofnaðilum Votlendissjóðs og er þátttakandi í stjórn sjóðsins. EFLA hefur meðal annars tekið þátt í að móta aðferðafræðina við mat á árangri endurheimtar votlendis og útfærslu vöktunar.

Háskólasamfélagið

EFLA leggur mikið upp úr góðum tengslum við háskólasamfélagið, bæði með því að leggja til starfsfólk til að sinna hlutverki leiðbeinenda í lokaverkefnum og því að inna stundakennslu í háskólunum. EFLA hefur gert samstarfssamning við háskólana og tekur við nemendum í starfsþjálfun til að sinna ákveðnum verkefnum.

EFLA leggur áherslu á að laða að efnilega háskólanema og mögulegt framtíðarstarfsfólk til starfa og síðasta sumar voru 25 háskólanemar ráðnir til fyrirtækisins sem sumarstarfsfólk.

Drift EA

EFLA er einn af aðilum kjarnateymis Drift EA, nýsköpunar- og frumkvöðlasamfélags á Akureyri sem hefur það að markmiði að styðja við þróun hugmynda, fyrirtækja og nýsköpunar á Norðurlandi. Með þátttöku sinni leggur EFLA til sérþekkingu og reynslu í ráðgjöf, tengslamyndun og þróun verkefna og tekur virkan þátt í að styðja frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtæki sem starfa innan Drift EA. Samstarfið fellur vel að stefnu EFLU um að efla nýsköpun, styrkja atvinnulíf á landsbyggðinni og byggja upp öflugt þekkingarsamfélag í nærumhverfinu.

Samstarf við Klappir

EFLA hóf samstarf við hugbúnaðarfyrirtækið Klappir. Markmið samstarfsins er að sameina hugbúnaðarlausnir Klappa og sérfræðiráðgjöf EFLU til að styðja fyrirtæki og stofnanir í sjálfbærniuppgjöri.

Með samstarfinu er ætlunin að veita viðskiptavinum alhliða þjónustu við utanumhald og uppgjör sjálfbærni í rekstri. Þannig má greina hvar tækifæri eru til að bæta rekstur með tilliti til kolefnisspors og annarra umhverfisáhrifa

EFLA - Samfélagsleg ábyrgð | Sjálfbærni- og ársskýrsla