Viðburðir
EFLA tók þátt í fjölda viðburða á árinu 2025.

Framadagar 2025
EFLA kynnti starfsemi sína fyrir nemendum í verkfræði og tæknigreinum á Framadögum í Háskólanum í Reykjavík. Með þátttöku í Framadögum er starfsemi fyrirtækisins kynnt fyrir framtíðarstarfsfólki og eins vakin athygli á sumarstörfum fyrir háskólanema.

Vinnustofa fyrir Hringrásargarð
Vinnustofan var liður í því að móta framtíðarsýn og stefnu fyrir Hringrásargarð á Álfsnesi með áherslu á nýsköpun, sjálfbærni og hringrásarhugsun. Hagaðilar kortlögðu möguleg viðskiptatækifæri sem styðja við þróun svæðisins og rýna í mismunandi sviðsmyndir fyrir garðinn sem byggja á þeim tækifærum.

Sensa-dagurinn
Sérfræðingar EFLU kynntu nýjustu hugbúnaðarlausnir fyrirtækisins og veittu innsýn í hvernig þær geta stuðlað að framþróun í tækni og rekstri fyrirtækja.

Starfamessa á Akureyri
Þátttaka í messunni gaf EFLU tækifæri til að kynna starfsemi sína fyrir framtíðarstarfsfólki. Messan styrkti tengsl við nemendur og nýja sérfræðinga og sýndi hvernig fyrirtækið leggur áherslu á að laða til sín hæft og áhugasamt fólk.

Orkuspár sem vísa veginn – Málþing EFLU
Með málþinginu fór fram faglegt samtal milli sérfræðinga og hagsmunaaðila, auk þess sem áhersla var lögð á sjálfbærni og framtíðarsýn í orku-, umhverfis- og mannvirkjamálum. Málþingið, sem var gríðarlega vel sótt, var vettvangur fyrir nýjar lausnir og samstarf í greininni.

Umhverfisráðstefna Austurlands
FLA lagði áherslu á sjálfbærni og ábyrga nýtingu auðlinda á ráðstefnunni. Þátttakan sýndi hvernig fyrirtækið miðlar þekkingu á vistvænum lausnum í orku- og mannvirkjamálum.

Málþingið „Byggjum til framtíðar“
Rannsóknaráðstefna lagði áherslu á nýsköpun, öryggi og sjálfbærni í byggingum og innviðum. Þátttakendur fengu fræðslu og ráðgjöf um hvernig hægt er að hanna og byggja með sjálfbærni og framtíðarhugsun í forgrunni.

Samorkuþing 2025
Þátttaka EFLU fólst í pallborðsumræðum og erindum og sýndi faglega forystu í orkuskiptum og nýrri tækni. Einnig stóð EFLA fyrir vinnustofu um áhrifamat vatnshlota.

Tengslafundur Festu, miðstöðvar um sjálfbærni
EFLA bauð aðilum Festu í heimsókn og tók þátt í umræðum um samfélagsábyrgð og loftslagsmarkmið. Þar var kastljósinu beint að sjálfbærni í starfsemi og verkefnum EFLU.

Brunatæknifélag Íslands
Sérfræðingar EFLU í brunahönnun og Brunatæknifélag Íslands héldu morgunfund í höfuðstöðvum EFLU. Á fundinum var sjónum beint að brunanum í Kringlunni árið 2024, tölfræði eldsvoða og nýjum leiðbeiningum um lagningu þakpappa. Fundurinn var frábært tækifæri til að miðla þekkingu og ræða nýjustu áskoranir og lausnir í brunavörnum.

NVF Bridges Seminar 2025
Kynning á nýjustu lausnum í brúarhönnun sýndi alþjóðlega faglega forystu EFLU og getu fyrirtækisins til að miðla nýjum lausnum og tækni á alþjóðlegum vettvangi.

Álklasaferð til Kanada
Fagleg verkefnisheimsókn styrkti tengsl og þekkingu í alþjóðlegri samvinnu um málm- og iðnaðargeirann og veitti innsýn í nýjustu þróun og samstarf í iðnaði.

Lagarlíf
Sérfræðingar EFLU voru meðal þátttakenda á ráðstefnu Lagarlífs, sem er helsti vettvangur fagfólks í lagareldi og sjávarútvegi, til að ræða áskoranir, tækifæri og nýjungar í greinunum. Þar var kynnt víðtæk þjónusta EFLU við lagareldis- og sjávarútvegsgeirann.

Loftslagsdagurinn
Sérfræðingur EFLU flutti erindið „Árangur aðgerða – Eigum við erindi sem erfiði?“ á ráðstefnu þar sem þemað var Framtíð í jafnvægi – Hvernig finnum við jafnvægi milli náttúru og aðgerða?

Vísindaferð fyrir háskólanema
Heimsókn nemenda til höfuðstöðva EFLU gaf innsýn í starfsemi fyrirtækisins, verkefni og hvernig raunveruleg verkfræðileg verkefni eru unnin, sem styrkir fræðslu og tengsl við framtíðarstarfsfólk.

Kvennafrídagurinn
Starfsfólk EFLU tók þátt í viðburði sem styrkir jafnrétti og eykur meðvitund um kynjajafnrétti og samfélagslega ábyrgð innan fyrirtækisins.

Bleiki dagurinn
Bleiki dagurinn styrkir vitund starfsfólks um heilsu og velferð. Með þátttöku á deginum sýnir EFLA ábyrgð í verki gagnvart starfsfólki og samfélaginu sem heilsueflandi vinnustaður.

Alþjóðleg ráðstefna Hydro, Grikklandi
Þátttaka sérfræðinga EFLU á ráðstefnunni styrkti alþjóðlega ímynd fyrirtækisins þegar kemur að sjálfbærni, orkuskiptum og nýsköpun í orku- og verkfræðimálum.

Námskeið um kolefnisspor bygginga
Sérfræðingar EFLU buðu upp á námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands um kolefnisspor bygginga. Námskeiðið var hugsað fyrir þau sem vildu afla sér þekkingar og hæfni til að meta kolefnisspor bygginga í samræmi við breytta byggingarreglugerð sem tók gildi 1. september 2025.

Vinnustofa um álagsdreifingu umferðar á höfuðborgarsvæðinu
Faglegur umræðuvettvangur sem stuðlaði að auknu skipulagi og betri hönnun samgangna á höfuðborgarsvæðinu auk þess að styrkja innviði og sýna fram á faglega nálgun EFLU á lausn samfélagslegra áskoranna.

Rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar
Sérfræðingar EFLU héldu kynningar á rannsóknarverkefnum sem hlutu styrk frá sjóðnum auk þess sem fjölbreyttu rannsóknar- og þróunarstarfi var miðlað.

Framtíð á Bakka
Sérfræðingar EFLU voru þátttakendur á ráðstefnu um framtíð Bakka á Húsavík. Þetta styrkti styrkti stöðu EFLU á Norðurlandi sem hluti af umræðunni um áskoranir og lausnir í nærsamfélaginu.