Beint í efni

Starfsfólk EFLU miðlar þekkingu á ráðstefnu

10. nóvember 2025

Fréttir
Bílar á ferð.

Starfsfólk EFLU tók virkan þátt í Rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar sem haldin var í 24. sinn föstudaginn 7. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir kynningu á fjölbreyttu rannsókna- og þróunarstarfi sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

Malbik og vindafar

Á ráðstefnunni var fjallað um fimmtán rannsóknarverkefni sem fengu styrk úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2024. Verkefnin spanna breitt fræðasvið og falla undir fjóra flokka: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.

Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir, sérfræðingur í samgöngumálum hjá EFLU, kynnti erindið Sementsefjustyrkt malbiksslitlag, þar sem fjallað var um nýjar leiðir til að bæta endingu og gæði slitlaga. Örn Dúi Kristjánsson, Marín Lilja Ágústsdóttir og Nína Gall Jörgensen, sérfræðingur EFLU, héldu erindið Hermanir á vindafari og tóku dæmi af Kjalarnesi, varðandi það hvernig vindafar hefur áhrif á hönnun og öryggi mannvirkja.

Vél að malbika inni í göngum.

Áhugaverð tilraun

Í tengslum við verkefni sitt ræddi Elín við RÚV um tilraunir með sérstaka blöndu malbiks og steypu sem gæti hentað vel á álagsstöðum eins og strætóbiðstöðum, flughlöðum og gámaplönum. Tilraunin felur í sér að leggja malbik með mikilli holrýmd og að skafa sementseðju yfir til að styrkja slitlagið.

Markmiðið er að fá endingarbetri slitflöt þar sem mikið álag er, þó að aðferðin sé kostnaðarsamari og tímafrekari en hefðbundin malbikun stenst hún frekar tímans tönn. Þessi tegund malbikunar var lögð á strætisvagnabiðstöðinni í Mjódd í Reykjavík í september sem mun koma til með aðveita mikilvægar upplýsingar um frostþíðuþol og endingu í íslenskum aðstæðum. Reynslan erlendis, meðal annars í Danmörku, bendir til góðs árangurs, en veðurfar á Íslandi gerir þessa tilraun sérstaklega áhugaverða.

Nánar verður fjallað um erindi Arnar og Elínar á vefsíðu EFLU í vikunni.

EFLA - Starfsfólk EFLU miðlar þekkingu á ráðstefnu