Tengslafundur Festu, miðstöðvar um sjálfbærni, var haldinn í höfuðstöðvum EFLU á mánudaginn. Fundurinn var hluti af virku samstarfi EFLU við Festu og samræmist stefnu fyrirtækisins þegar kemur að því að vera leiðandi í sjálfbærni, loftslagsmálum og samfélagsábyrgð.
Vistferilsgreiningar og Matarspor
Fundinn setti Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Festu, en í framhaldinu kynntu sérfræðingar EFLU árangur í umhverfis- og loftslagsmálum. Þetta voru þau Helga Jóhanna Bjarnadóttir, sviðsstjóri samfélags, Eva Yngvadóttir, Alexandra Kjeld og Aríel Jóhann Kessler Árnason.
Fjölbreyttur hópur aðila úr atvinnulífinu sótti fundinn og urðu samræður og skoðanaskipti í lok fundar einkar áhugaverð.

Sjálfbærni og samfélagsábyrgð
Kastljósinu var beint að sjálfbærni í starfsemi og verkefnum EFLU. Helga Jóhanna Bjarnadóttir, sviðsstjóri samfélags, kynnti hvernig sjálfbærni er eitt af meginstefnumiðum fyrirtækisins. Í allri ráðgjöf er tekið tillit til umhverfis-, öryggis- og samfélagslegra þátta og viðskiptavinum boðið upp á umhverfisvæna valkosti.
EFLA leggur mikinn metnað í hönnun vistvænna mannvirkja samkvæmt alþjóðlegu vottunarkerfi BREEAM og byggir á traustum grunni stefna og vottana, þar á meðal jafnlaunavottun, ISO-staðlar og þátttöku í UN Global Compact-sáttmálanum.
Eva Yngvadóttir kynnti hvernig EFLA hefur unnið markvisst að því að draga úr kolefnisspori í rekstri og haft skýr markmið í þeim málum frá árinu 2015. Kolefnisspor EFLU hefur lækkað verulega, meðal annars vegna aukinnar fjarvinnu, rafbílavæðingar og fækkunar flugferða.
Greiningar sem leiða til umbóta
Alexandra Kjeld, umhverfisverkfræðingur EFLU, fjallaði um mikilvægi vistferilsgreininga í byggingargeiranum. Alexandra lagði áherslu á að sjálfbærni í hönnun krefst heildarsýnar og að vistferilsgreiningar séu lykilverkfæri til að taka upplýstar ákvarðanir. Með því að greina kolefnisspor byggingarefna og orkunotkun á öllum stigum, frá hráefnavinnslu til niðurrifs, hefur EFLU og samstarfsaðilum hefur tekist að draga úr sementsnotkun og kolefnisspori um tugi tonna.

Nýsköpun í rekstri
Aríel Jóhann Kessler Árnason kynnti hugbúnaðinn Matarsporið sem EFLA hefur þróað til að draga úr matarsóun og bæta rekstur mötuneyta. Á heimsvísu stuðlar matarsóun að um 10% af allri losun gróðurhúsalofttegunda og því er þessi nálgun bæði samfélagslega og umhverfislega mikilvæg.
Hugbúnaðurinn heldur utan um næringargildi, ofnæmisvalda og kolefnisspor máltíða og birtir upplýsingarnar í notendavænu viðmóti. Með því að skrá starfsmenn í mat og samræma innkaup er hægt að draga úr sóun og bæta hagkvæmni. Hugbúnaðurinn er í speannandi þróun og mun ný og bætt útgáfa líta dagsins ljós á næstu misserum.
Framtíðarsýn og næstu skref
EFLA hyggst halda áfram að skipta út bílum fyrir rafmagnsbíla, taka mið af kolefnisspori við innkaup á tölvum og mat, og minnka úrgang um 5% á ári. Allur úrgangur er flokkaður og 98,5% fer í endurvinnslu. Með því að nýta vistferilsgreiningar, umhverfisyfirlýsingar og stafrænar lausnir eins og Matarsporið, sýnir EFLA hvernig fyrirtæki geta sameinað umhverfisábyrgð, samfélagslega ábyrgð og hagkvæman rekstur í átt að sjálfbærni.
Hægt er að kynna sér þjónustu EFLU í vistferilsgreiningum nánar.
1 / 6
2 / 6
3 / 6
4 / 6
5 / 6
6 / 6
