Nýsköpun
EFLA leggur ríka áherslu á nýsköpun og þróun lausna sem styðja við sjálfbær og snjallari samfélög.

Með fjölbreyttum rannsóknar- og þróunarverkefnum vinnur EFLA að framþróun í orkumálum, hringrásarhagkerfi, samgöngum, stafrænni þróun og oftslagsaðgerðum. Verkefnin eru fjölbreytt og spanna allt frá fýsileikagreiningum, vetnisgasveitu og endurnýtingu úrgangs til þróunar kortalausna og snjallforrita. Í amstarfi við stofnanir, fyrirtæki og sveitarfélög nýtir EFLA sérfræðiþekkingu sína til að skapa hagnýtar og sjálfbærar lausnir sem bæta lífsgæði og stuðla að umhverfisvænni framtíð.
Fleyting vikursalla sem umhverfisvæn flutningsaðferð
EFLA framkvæmdi tæknilega og viðskiptalega greiningu á fleytingu vikursalla sem sjálfbærum valkosti í flutningum. Markmiðið var að meta fleytieiginleika, slit á kerfi og arðsemi aðferðarinnar út frá hlutfalli vatns og vikurs.
Tilraunir voru framkvæmdar í 20 metra löngu fleytikerfi þar sem prófuð voru mismunandi vatns- og vikurhlutföll við breytilegan halla. Í kjölfarið var slit á kerfinu metið til að leggja grunn að vali á efni og frekari þróun.
Sérfræðingar á rannsóknarstofu og teymi viðskiptaþróunar hjá EFLU skipulögðu og stýrðu verkefninu, sem var að fullu fjármagnað af EP Power Minerals Iceland í samstarfi við EP Power Minerals Germany. Tilraunum á Íslandi er lokið og unnið er að mati á næstu skrefum, meðal annars varðandi efnisval og mögulega stækkun kerfisins, þar sem rennsli gæti numið allt að 3.600 lítrum á sekúndu.
Fokgirni og bindieiginleikar vikurs
EFLA framkvæmdi rannsókn á fokgirni vikurs með það að markmiði að greina við hvaða vindhraða efnið fer að fjúka, með hliðsjón af rakastigi og bindieiginleikum.
Niðurstöðurnar eru mikilvægar fyrir örugga meðhöndlun og geymslu efnisins.
Vikri var komið fyrir í vindgöngum hjá Verkfræðideild Háskóla Íslands þar sem framkvæmdar voru mismunandi keyrslur við breytilegar aðstæður. EFLA skipulagði, stýrði og rak tilraunina í samstarfi við Rannsóknarstofu HÍ og Viðskiptaþróun.
Verkefnið var að fullu fjármagnað af EP Power Minerals Iceland í samvinnu við EP Power Minerals Germany og er nú lokið. Niðurstöður sýna að nauðsynlegt er að byggja yfir efnisgeymslu við útflutningshöfn, þar sem vindhraði fer reglulega yfir þau mörk sem valda foktapi.
Flutningskerfi framtíðar
EFLA vinnur að þróun verkfæra og verkferla til að meta heildstæð áhrif uppbyggingar vindorku á íslenska raforkukerfið. Markmiðið er að móta vegvísi um nauðsynlega uppbyggingu, rekstur og rannsóknir til að auka getu flutningskerfisins til að taka við aukinni vindorkuframleiðslu.
Þróað var nýtt greiningarverkfæri í Python sem metur hvernig breytileiki í vindorkuframleiðslu leggst á línur kerfisins og varpar ljósi á veika hlekki þess. Verkfærið gerir notendum kleift að greina mismunandi sviðsmyndir uppbyggingar og meta hversu mikla vindorku hver þeirra ræður við. Verkefnið er unnið á orkusviði EFLU í Reykjavík og felur í sér þróun aðferða til kerfisgreininga samhliða hönnun verkfærisins.
Landsnet er samstarfsaðili verkefnisins og hefst annar fasi í febrúar 2026, þar sem áfram verður unnið að þróun og útfærslu greiningaraðferða og -verkfæra til ársloka 2026.
Samgöngur – næstum því slys og slysagögn
EFLA vinnur rannsóknarverkefni þar sem næstum því slys eru borin saman við skráð slysagögn í gagnagrunni Samgöngustofu til að kanna hvort tegund og tíðni næstum því slysa samræmist skráðum slysum. Gögnin ná til næstum því slysa sem greind hafa verið fyrir Reykjavíkurborg og Vegagerðina árin 2024–2025.
Verkefnið felur í sér ítarlega greiningu á ferlum ökutækja, þar sem myndbandsgögn eru unnin með gervigreind Miovision til að meta tíma milli skurðpunkta og hraða ökutækja. Hvert atvik er flokkað eftir alvarleikastigi út frá þessum gögnum. Verkefnið er í vinnslu hjá samfélagssviði EFLU með stuðningi Rannsóknarsjóðs Vegagerðarinnar og er áætlað að því ljúki í lok árs 2026.
Úr skógi
Verkefnið „Úr skógi“ hjá EFLU miðar að því að kanna fýsileika úrvinnsluleiða fyrir nytjaafurðir úr íslenskum skógum og þróa leiðir til að skapa verðmæti úr hráefnum em fást við grisjun og nýtingu. Í fyrsta áfanga verkefnisins voru hugmyndir flokkaðar ítarlega í flokka eins og timburvörur, hliðarafurðir, sértækar vörur, orka, matur, drykkir og upplifanir. Hugmyndirnar voru síðan metnar út frá raunhæfni, markaði og aðstæðum, með það að markmiði að greina þær vörur sem líklegastar eru til að verða arðbærar.
EFLA stýrði verkefninu í samvinnu við Félag skógarbænda á Suðurlandi og í samráði við LOGS, LHÍ og félag vöruhönnuða, með stuðningi frá Sóknaráætlun Suðurlands. fyrsta áfanga verkefnisins er lokið og áframhaldandi vinna mun helst snúa að þróun úrvinnsluleiða og frekari verðmætasköpun úr skógarnytjum.
Samgöngumat – leiðbeiningar Vegagerðarinnar
Verkefnið snýr að þróun leiðbeininga fyrir gerð samgöngumats vegna uppbyggingar- og skipulagsverkefna sem geta haft áhrif á samgöngur. Markmiðið er að tryggja samræmdar, faglegar og aðgengilegar greiningar sem meta áhrif nýrra áforma á samgöngukerfið á heildstæðan hátt, með tilliti til umfangs og mögulegra áhrifa.
Í samstarfi við Vegagerðina vann EFLA að gerð leiðbeininganna með stuðningi við innlendar og erlendar fyrirmyndir. Leiðbeiningarnar fjalla um hvernig meta skuli hvort verkefni krefjist samgöngumats og ákveða umfang þess. EFLA stýrði vinnunni, stillti upp grunni að leiðbeiningunum sem voru rýndar af Vegagerðinni og að lokum gefnar út í febrúar 2026 með stuðningi Rannsóknarsjóðs Vegagerðarinnar.
Bætt nýting glatvarma og landgæða
Markmið verkefnisins var að meta hvernig best væri að byggja upp innviði og ákjósanlegan búnað fyrir heilsársþurrkun og kögglun á lífrænum hráefnum og kanna hvaða hráefni henta fyrir slíka starfsemi, til dæmis gras, korn, hálmur og grisjunarviður. Sérstaklega var horft til nýtingar glatvarma frá mismunandi orkuuppsprettum til að hámarka skilvirkni búnaðarins.
Verkefnið skiptist í þrjá meginkafla: greiningu á hráefnum og viðskiptatækifærum til að nýta búnað allan ársins hring, kortlagningu framboðs og möguleika á nýtingu glatvarma við Húsavík og rannsókn á hentugum þurrkunarbúnaði fyrir tilraunaframleiðslu á graskögglum samhliða kornþurrkun.
EFLA leiddi verkefnið í samstarfi við GG2023, sem undirbýr uppbyggingu grasköggla- og kornþurrkunarstöðvar í Þingeyjarsýslu. Verkefninu lauk í árslok 2025 og næsta skref er uppbygging pilotstöðvar við Húsavík.
Áhrif og þróun deilirafhlaupahjóla á ferðavenjur á Íslandi
Verkefnið kannar hvernig deiliþjónusta rafhlaupahjóla frá Hopp hefur áhrif á ferðavenjur og ferðamynstur á Íslandi. Markmiðið er að afla nýrra gagna og framkvæma greiningar sem byggja á fyrri rannsókn, Áhrif örflæðis á ferðavenjur á Íslandi frá 2020, en þar var sérstaklega skoðuð notkun rafhlaupahjóla og viðhorf notenda.
Verkefnið felur í sér viðhorfskönnun meðal notenda og ítarlega gagnagreiningu í samstarfi við Hopp. EFLA sér um stýringu og framkvæmd verkefnisins á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið er í vinnslu og áætlað að því ljúki á árinu 2026, með stuðningi frá Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar.
Þróun almenningssamgangna á og við höfuðborgarsvæðið
Rannsóknin varpar ljósi á notkun og þróun almenningssamgangna til höfuðborgarsvæðisins og frá því með áherslu á svæði eins og Akranes, Hveragerði, Selfoss og Reykjanesbæ. Markmiðið er að þróa ástandsvísa sem mæla umferð inn á höfuðborgarsvæðið frá jaðarsvæðum og hlutverk almenningssamgangna í því samhengi, til að aðstoða Vegagerðina og stjórnvöld við að setja mælanleg markmið og skipuleggja framtíðarþróun.
Verkefnið byggir á heimildavinnu, gagnavinnslu og hefðbundinni rannsóknarvinnu. EFLA sér um stýringu og framkvæmd á Suðvesturhorninu. Verkefnið er í vinnslu og áætlað að því ljúki á árinu 2026, með stuðningi frá Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar.
Samanburður samgöngulíkans höfuðborgarsvæðisins og raungagna
Verkefnið fólst í því að meta áreiðanleika samgöngulíkans höfuðborgarsvæðisins með samanburði á umferðarspám líkansins fyrir árið 2024 og raunverulegum mferðargögnum. Markmiðið var að greina hversu vel líkanið endurspeglar raunverulega umferð, greina kerfisbundin frávik og bera kennsl á þarfir til umbóta. Niðurstöðurnar styrkja notagildi líkansins sem trausts verkfæris við stefnumótun og ákvarðanatöku í samgöngu- og skipulagsmálum.
Verkefnið byggði á heimildavinnu, gagnavinnslu og hefðbundinni rannsóknarvinnu. EFLA stýrði verkefninu og sá um framkvæmd á höfuðborgarsvæðinu. Verkefninu lauk í desember 2025 með stuðningi frá Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar.