Beint í efni

Hlutverk

EFLA er þekkingarfyrirtæki með yfir 50 ára sögu sem veitir fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf á öllum helstu sviðum verkfræði, tækni og tengdra greina.

Loftmynd af ártúnsbrekku

Hlutverk EFLU er að koma með lausnir sem stuðla að framförum hjá viðskiptavinum og efla samfélög. Því er samfélagsleg ábyrgð samofin tilgangi fyrirtækisins.

EFLA heldur í heiðri vistvæna áherslu og sjálfbærni í viðfangsefnum sínum og ber virðingu fyrir samfélagi og umhverfi. Metnaður starfsfólks liggur m.a. í að veita viðskiptavinum og samstarfsaðilum framúrskarandi þjónustu og afburðaráðgjöf. Starfsumhverfið er krefjandi þar sem ríkar kröfur eru gerðar til þróunar á nýjum aðferðum og lausnum og gegnir nýsköpun því mikilvægu hlutverki í starfseminni. EFLA heldur úti starfsstöðvum um allt land auk þess að hafa byggt upp starfsemi erlendis og náð þar fótfestu. EFLA á dóttur- og hlutdeildarfélög í sex löndum, en auk Íslands skilgreinir fyrirtækið Noreg sem sinn heimamarkað.

Traustur rekstur er lykilatriði í starfseminni og samkvæmt ársreikningi EFLU námu rekstrartekjur fyrirtækisins, ásamt dótturfélögum, tæplega 13,1 milljörðum króna og þar af voru tekjur erlendu dótturfélaganna um 29% af veltu. EFLA er hlutafélag og eru allir hluthafar starfandi í félaginu. EFLA er eitt af þeim fyrirtækjum á Íslandi sem hlotið hafa viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki hvað varðar rekstur og fjárhagslega stöðu frá upphafi þeirrar viðurkenningar, árið 2010.

Lögð er áhersla á að allt starfsfólk EFLU hafi gildi fyrirtækisins að leiðarljósi í öllu sínu starfi, við ákvarðanatöku og í samskiptum við samstarfsfélaga og viðskiptavini.

Þau grundvallarviðhorf og hugmyndir sem liggja að baki fyrirtækjamenningu EFLU endurspeglast skýrt í þremur gildum:

Hugrekki

Öll verkefni eru áskorun um að finna snjallar lausnir – hjá okkur er allt mögulegt.

Samvinna

Við erum samstillt og vinnum náið með viðskiptavinum að framúrskarandi árangri.

Traust

Við byggjum á öflugri þekkingu, reiðum okkur hvert á annað og stöndum við það sem við segjum.

Öll starfsemi EFLU ber þess merki að stjórnkerfi fyrirtækisins eru vottuð og byggjast á gæðastjórnun ISO 9001, umhverfisstjórnun ISO 14001, öryggisstjórnun ISO 45001 og upplýsingaöryggisstjórnun ISO 27001, auk þess sem starfsemin er jafnlaunavottuð.

EFLA er aðili að Global Compact-sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagslega ábyrgð og styðst við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í

stefnumörkun fyrirtækisins. Heimsmarkmiðin eru 17 með 169 undirmarkmiðum og gilda til ársins 2030.

EFLA hefur forgangsraðað fjórum heimsmarkmiðum út frá stefnumiðun fyrirtækisins. Þau tengjast kjarnastarfsemi EFLU og eru samofin stefnumótun félagsins.

Þessi markmið eru:

7. Sjálfbær orka

9. Nýsköpun og uppbygging

11. Sjálfbærar borgir og samfélög

12. Ábyrg neysla og framleiðsla

Jafnframt er lögð áhersla á heimsmarkmið nr. 5. Jafnrétti kynjanna, 8. Góð atvinna og hagvöxtur og 13. Aðgerðir í loftslagsmálum.

Í takt við hraðar breytingar og þróun í samfélaginu er teymishugsun kjarninn í samvinnu og starfsumhverfi EFLU. Markmiðið er að skapa skýrari megináherslur í starfseminni, einfaldari uppbyggingu, meiri aðlögunarhæfni, spennandi starfsþróunarmöguleika og lifandi fyrirtæki.

Markaðssvið fyrirtækisins eru fjögur: byggingar, iðnaður, orka og samfélag. Stoðsvið EFLU eru þrjú: mannauður, rekstur og þróun. Á landsbyggðinni eru svæðisskrifstofur EFLU á Norðurlandi, Austurlandi, Vesturlandi, Vestfjörðum og Suðurlandi. Um 26% starfsfólks EFLU starfar á landsbyggðinni.

bygging

Byggingar

EFLA hefur verið í fararbroddi við hönnun mannvirkja, bæði í nýbyggingum og við endurgerð bygginga. Vistvæn sjónarmið eru höfð að leiðarljósi og rík áhersla lögð á nýsköpun og þróun. Sérstaða EFLU felst í mikilli breidd, alhliða þekkingu og hæfni til að koma með óhefðbundnar lausnir í krefjandi verkefnum, t.d. við undirbúning, áætlanagerð, hönnun, eftirlit og verkefnastjórnun.

Vellíðan og heilsa notenda í byggingum er ætíð í forgrunni og tekur hönnunin mið af vönduðu efnisvali, loftgæðum, hljóðvist, orkunýtni og lýsingu. Ávallt er miðað að því að lágmarka umhverfisáhrif bygginga yfir líftíma þeirra til þess að minnka kolefnisspor og stuðla að sjálfbærni.

Iðnaður

Iðnaður

Sérfræðingar EFLU hafa alþjóðlega reynslu af verkefnum og ráðgjöf í iðnaði og framleiðslu, þar með talið af stjórnkerfum, vinnsluferlum, stýringum og sjálfvirkni. Við blasir áframhaldandi hröð þróun tengd tækni og stafrænni umbreytingu og EFLA styður viðskiptavini í þeirri vegferð.

EFLA veitir fjölbreytta ráðgjöf í iðnaði til að auka

skilvirkni, framleiðni, öryggi, upplýsingagjöf og gæði í vinnsluferlum og þjónustu. Einnig er til staðar yfirgripsmikil þekking á vinnsluferlum og sjálfvirknivæðingu í iðnaði og stjórnkerfum. Unnið er markvisst að þróun snjallra lausna og heildarlausna þar sem gervigreind, róbótatækni og myndgreining gegna mikilvægu hlutverki.

Loftmynd af Geysi

Orka

EFLA veitir heildstæða ráðgjöf við undirbúning, rannsóknir, virkjun, viðhald og eftirlit á sviði endurnýjanlegrar orku sem og flutnings- og dreifikerfi raforkunnar. EFLA hefur mikla alþjóðlega reynslu af hönnun orkuflutningskerfa. Jafnframt býr starfsfólk yfir sterkri faglegri sérhæfingu í orkumálum og hefur áratuga reynslu af hagrænni greiningu og ráðgjöf á sviði orkumála og raforkukerfisins í heild.

Aðgangur að sjálfbærri orku og orkuskipti verða grundvallaratriði í framförum og hagsæld í framtíðinni og lykilþáttur í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. EFLA er leiðandi þátttakandi í þróun lausna og ráðgjafar á þessu sviði

Loftmynd af ártúnsbrekku

Samfélag

EFLA hefur það að markmiði að vera lykilþátttakandi í að bæta samfélagið í þeim tilgangi að auka lífsgæði, þróa mikilvæga innviði og styrkja atvinnulífið. Undirstöðuatriði framsækinna lausna byggja á sjálfbærni og opnar stafræn þróun ný tækifæri á öllum sviðum samfélagsins.

EFLA er leiðandi í sjálfbærum lausnum til að bæta samfélagið með umhverfisleg, samfélagsleg og hagræn sjónarmið að leiðarljósi. Þjónustan er fjölbreytt, hún snýr t.d. að stefnumótun í samfélagslegum viðfangsefnum, greiningum, skipulagsgerð, landslagsarkitektúr, umhverfismálum, vatns-, hita- og fráveitum, vistvænum samgöngum og samgöngumannvirkjum, hamfaravörnum og öryggi samfélagsins.

EFLA um allt land

FLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Á árinu voru tuttugu og einn einstaklingur í slíku teymisfyrirkomulagi innan EFLU.

Dótturfélög

Noregur

EFLA í Noregi er leiðandi í ráðgjöf á sviði orkuflutnings. Félagið hefur aukið vægi orkusviðs í starfsemi sinni með markvissum hætti. Lögð er áhersla á hönnun og ráðgjöf í háspennulínum, tengivirkjum og öðrum verkefnum tengdum flutningi og dreifingu raforku. Sérfræðingar EFLU í Noregi vinna einnig að verkefnum á sviði samgangna og annarra verkfræðigreina.

Árið 2025 markaði tímamót í rekstri félagsins. Þrátt fyrir áskoranir og skipulagsbreytingar í upphafi árs styrktist starfsemin þegar á leið, með auknum stöðugleika og skýrari stefnu. Mikill vöxtur var á orkusviði EFLU í Noregi, bæði hvað varðar verkefni, mannauð og aukið samstarf innan EFLU um allan heim.

Félagið tók þátt í stórum orkuflutningsverkefnum fyrir Statnett, Elvia og Aibel sem fól meðal annars í sér þátttöku í háspennuverkefnum á skipulagsstigi. Aðkoma að þess háttar verkefnum styrkir stöðu félagsins í Noregi.

Starfsfólk EFLU í Noregi tók einnig þátt í mikilvægum samgönguverkefnum sem styrkja innviði þar í landi. Frekari miðlun þekkingar milli sérfræðinga EFLU og samvinna milli landa hefur aukið getu félagsins til að leysa flókin og umfangsmikil verkefni.

EFLA í Noregi er vel í stakk búin til áframhaldandi vaxtar. Með auknum fjárhagslegum stöðugleika, meiri sérþekkingu og skýrri framtíðarsýn getur fyrirtækið nú, sem fyrr, lagt sitt að mörkum til uppbyggingar orkukerfisins og innviða í Noregi.

Svíþjóð

EFLA í Svíþjóð er leiðandi í ráðgjöf á sviði orkuflutnings. Fyrirtækið veitir sérhæfða þjónustu við uppbyggingu og þróun á sænska flutningskerfinu, þar sem áhersla

er lögð á hönnun háspennulína og þróun nýrra mastragerða, meðal annars fyrir Svenska kraftnät.

Árið 2025 var afar farsælt hjá fyrirtækinu. Teymi EFLU í Stokkhólmi stækkaði og efldist um leið og verkefnum fjölgaði til muna. Þetta skilaði miklum vexti og styrkti stöðu EFLU í Svíþjóð.

Öflug vinnustaðamenning er mikils metin hjá fyrirtækinu og starfsfólki þess. Hjá EFLU í Svíþjóð starfa ungir og metnaðarfullir sérfræðingar í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga EFLU samstæðunnar. EFLA í Svíþjóð býr að sterkri verkefnastöðu, traustu samstarfi við lykilviðskiptavini og víðtækri verkfræðilegri þekkingu sem styður við uppbyggingu orkuflutninga í Svíþjóð og gerir EFLU kleift að viðhalda framúrskarandi þjónustu.

Maður á uppstilltri mynd.

Árið 2025 var afar farsælt hjá fyrirtækinu. Teymi EFLU í Stokkhólmi stækkaði og efldist um leið og verkefnum fjölgaði til muna. Þetta skilaði miklum vexti og styrkti stöðu EFLU í Svíþjóð

Steinþór Gíslason
  • Orka

Skotland

EFLA KLSD lýsingarhönnunarstofa í Skotlandi náði á árinu 2025 mikilvægum áföngum í verkefnum, nýsköpun og samstarfi bæði í Bretlandi og á Íslandi.

Teymið hefur lagt mikla áherslu á að standa framarlega þegar kemur að tæknilegum úrlausnum, auk þess að vera aðlögunarhæft, sveigjanlegt og sjálfbært í úrlausn

verkefna. Allt þetta styrkir stöðu stofunnar sem leiðandi lýsingarhönnunarstofu á alþjóðavettvangi.

Meðal helstu verkefna ársins var lýsingarverkefni við Inverness Castle, sem lauk eftir meira en fimm ára náið samstarf og markvissa þróun. Verkefnið sýnir metnað teymisins fyrir því að skila nýstárlegum lausnum og styrkir orðspor stofunnar í hönnun lýsingar á sögulegum byggingum. EFLA KSLD í Skotlandi hefur jafnframt unnið að lýsingu á öðrum skoskum kennileitum, þar á meðal Glasgow Cathedral.

EFLA KSLD lagði mikla áherslu á nýsköpun og framþróun í verkefnum sínum á árinu 2025. Sérstök verkefni, svo sem samstarf við Royal Botanic Garden Edinburgh, þar sem þróuð voru ljós sem ganga fyrir rafhlöðum, sýna hæfni stofunnar til að sameina skapandi hönnun og trausta tæknilega nálgun.

EFLA KSLD í Skotlandi styrkti einnig tengsl við viðskiptavini á Íslandi og jók samstarf við EFLU á Íslandi sem skilar sér í samfelldari verkefnastjórn á mörkuðum og hefur jákvæð áhrif á verkefnaþróun.

Pólland

EFLA í Póllandi er öflugt verkfræðiráðgjafarfyrirtæki með starfsemi í Łódz´ og Poznan´ og gegnir sístækkandi hlutverki við uppbyggingu pólska raforkukerfisins. Þar starfar öflugur hópur sérfræðinga sem vinnur í nánu samstarfi við samstarfsfólk EFLU í öðrum löndum. Starfsemin einkennist af alhliða undirbúningi og hönnun raforkuflutningslína og tengivirkja, þar á meðal tengistöðva, loftlína, jarðstrengja, ljósleiðara og háspennubúnaðar. Meðal helstu viðskiptavina er Polskie Sieci Elektroenergetyczne (PSE) auk rafdreifiveitna víða um Pólland.

Árið 2025 var ár öflugs vaxtar og markvissrar uppbyggingar. Félagið náði 75% vexti milli ára, opnaði nýja skrifstofu í Poznan´ og styrkti skipulag, innviði og sérþekkingu sína. Samhliða því var ráðist í umbætur á rekstri og stafrænum kerfum til að auka skilvirkni og bæta samhæfingu teymanna. Áhersla var lögð á faglega þróun starfsfólks með skýrum markmiðum um framgang og aukna uppbyggingu hönnunarteyma til að mæta vaxandi verkefnaflóru.

EFLA í Póllandi gegnir lykilhlutverki í nútímavæðingu orkuinnviða landsins. Félagið hefur komið að umfangsmiklum og tæknilega krefjandi verkefnum, þar á meðal uppbyggingu Łódz´-hringtengingarinnar, fjölmörgum nýbyggingum og endurbótum tengivirkja. Framundan er vinna við endurbætur á Rogowiec-tengivirkinu, sem er einn lykilhluti pólska flutningskerfisins og tengist raforkuframleiðslu frá Bełchatów raforkuverinu.

Með sterkri stöðu, stækkandi hópi sérfræðinga og skýrri stefnu mun EFLA í Póllandi halda áfram að styðja við orkuskipti og innleiðingu endurnýjanlegra orkugjafa í Póllandi og taka þátt í frekari uppbyggingu raforkukerfisins á komandi árum.

Frakkland

Árið 2025 lagði HECLA áherslu á að tryggja stöðugleika í starfseminni eftir tímabil mikils vaxtar á orkusviðinu. Markmiðið var að styrkja starfsemi, auka stöðugleika og draga úr mögulegri áhættu sem fylgir hraðri uppbyggingu. Verkefnastaða HECLU í Frakklandi var góð á árinu 2025, starfsfólki fjölgaði og sérþekking jókst, sem lagði traustan grunn að áframhaldandi þróun og áreiðanleika í allri starfsemi félagsins.

Helstu verkefni ársins 2025 voru verkfræðileg greining, burðarþolshönnun og stafræn líkanagerð háspennuloftlína. Í nánu samstarfi við viðskiptavini og samstarfsaðila viðhélt HECLA stöðugri verkefnastöðu allt árið. Fjölmörg verkefni voru tæknilega krefjandi og kröfðust nákvæmrar líkanagerðar og traustrar samvinnu verkfræðinga og annarra sérfræðinga. Þrátt fyrir að verkefnin væru innan sérsviðs HECLU kölluðu þau á stöðuga aðlögun að tæknilegum og rekstrarlegum kröfum og sýndi það hæfni fyrirtækisins til að stýra flóknum innviðaverkefnum af fagmennsku.

Með fjölgun starfsfólks á árinu 2025 jókst geta félagsins til að sinna mörgum verkefnum samtímis án þess að draga úr gæðum. Jafnframt var unnið markvisst að innri þróunarverkefnum sem undirbúa félagið fyrir breytingar og langtímaverkefni til framtíðar.

HECLA stefnir á áframhaldandi uppbyggingu teymisins, skýrara skipulag og sterkari verkefnastjórnun. Áhersla verður lögð á að auka tæknilega sérþekkingu og að laga ferla að langri tímalínu fluningsverkefna. Með þessum aðgerðum mun félagið styðja við áframhaldandi vöxt og tryggja stöðu sína sem áreiðanlegur samstarfsaðili í krefjandi verkefnum.

Með áherslu á stöðugleika, gæði og uppbyggingu lagði HECLA traustan grunn árið 2025 fyrir áframhaldandi árangur í Frakklandi og innan EFLU-samstæðunnar.

Danmörk

EFLA Aps, dótturfélag EFLU í Danmörku, var stofnað árið 2024 og er með skrifstofu í Kaupmannahöfn. Innkoma EFLU á danskan markað er langtímaverkefni og hluti af stefnu fyrirtækisins um að ná fótfestu á nýjum mörkuðum þar sem tækifæri er að finna.

Fjölmörg tækifæri felast í því að nýta sérþekkingu starfsfólk EFLU-samstæðunnar á dönskum markaði. Um er að ræða þróunarverkefni til framtíðar við að kynna fyrirtækið, leggja grunn á nýjum markaði, sækja verkefni og byggja upp starfsemi.

EFLA - Hlutverk | Sjálfbærni- og ársskýrsla