Beint í efni

Vinnustofa um álags­dreif­ingu umferðar

5. nóvember 2025

Fréttir
Fólk á vinnustofu.

EFLA stóð nýverið fyrir vinnustofu um mögulegar aðgerðir til að dreifa álagi í umferð á höfuðborgarsvæðinu. Vinnustofan er hluti af verkefninu Álagsdreifing umferðar sem EFLA vinnur fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og er eitt af sóknaráætlunarverkefnum ársins 2025.

Betra umferðarflæði

Um 30 fulltrúar stofnana, fyrirtækja og sveitarfélaga sóttu vinnustofuna en þar fór Daði Baldur Ottósson, samgönguverkfræðingur hjá EFLU, yfir helstu áhrifaþætti umferðarálags. Má þar nefna ferðavenjur, álagstíma umferðar, mannfjöldaspár, skipulag byggðar, og samgöngustyrki og samgöngustefnur vinnustaða.

Á vinnustofunni voru auk þess ræddar mögulegar aðgerðir til að mæta auknum umferðarþunga á höfuðborgarsvæðinu. Meðal þeirra var aðgerðin fleytitíð sem snýst um að hliðra opnunartíma stórra vinnustaða og stofnana til að dreifa umferðarálagi yfir daginn. Auk þess var fjallað um hvetjandi aðgerðir fyrir vistvænan ferðamáta, betra aðgengi að hjólastæðum, deilibíla á vinnustöðum, samgöngusamninga og styrki, gjaldtöku á bílastæðum og sameiginlegar ferðir til vinnu og skóla.

Markmiðið með vinnustofunni er að móta tillögur sem bæta flæði samgöngumáta á svæðinu, sérstaklega í ljósi umfangsmikilla framkvæmda sem framundan eru vegna Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Betra umferðarflæði skilar samfélagslegum ávinningi, styttir ferðatíma, eykur skilvirkni og dregur úr álagi á innviði. Niðurstöður verkefnisins verða kynntar í skýrslu við lok árs.

Fólk á vinnustofu.

EFLA í umferðinni

EFLA býður upp á heildstæða ráðgjöf í samgöngumálum með áherslu á öryggi, skilvirkni og sjálfbærni. Verkefnin ná til allra þátta samgangna, svo sem frá skipulagningu almenningssamgangna til hönnunar strætóreina, frá umferðargreiningum á skipulagsstigi til aðgerða til að bæta umferðaröryggi eða ráðgjöf við samgöngustefnur fyrirtækja og stofnanna.

EFLA er einnig í fararbroddi þegar kemur að öflun umferðargagna og aðferða við greiningu þeirra, t.d. við greiningu á tafatíma, breytingu á ferðamynstri og kortlagningu flæðis umferðar um gatnamót.

EFLA hefur margra ára reynslu á þessu sviði og vinnur náið með sveitarfélögum og stofnunum að efla samgöngur fyrir samfélagið.

Fólk á vinnustofu.
EFLA - Vinnustofa um álagsdreifingu umferðar