Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um sumarstörf hjá EFLU sumarið 2026. Við leitum að efnilegum, hugmyndaríkum og metnaðarfullum nemum sem eru tilbúnir að axla ábyrgð, læra af reyndu fagfólki og takast á við ný og spennandi tækifæri í krefjandi starfsumhverfi.
Á hverju vori stígur nýr hópur nemenda inn um dyr EFLU. Með ferska sýn, forvitni og metnað að leiðarljósi taka þau sín fyrstu skref í raunverulegum verkefnum. Fyrir mörg þeirra markar sumarstarf hjá EFLU upphafið að löngum og fjölbreyttum ferli.
Hittu okkur á Framadögum
Til að kynnast EFLU og sumarstörfunum betur hvetjum við áhugasama háskólanemendur til að heimsækja okkur á Framadögum í HR miðvikudaginn 22. janúar kl. 10:00–14:00. EFLA verður með bás á 1. hæð, þar sem starfsfólk frá öllum helstu sviðum fyrirtækisins verður til staðar og veitir innsýn í verkefnin, vinnustaðinn og fjölbreyttan bakgrunn starfsfólks.
Vilt þú vinna með okkur í sumar?
Umsóknir um sumarstörf sumarið 2026 eru nú opnar. Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar.
