Sérfræðingar EFLU komu að endurbótum eftir rakaskemmdir á leikskólanum Grandaborg en leikskólinn hlaut Svansvottun eftir endurbæturnar. Vottunin er hluti af markvissri uppbyggingu Reykjavíkurborgar þar sem aukin áhersla er lögð á gæði bygginga og heilnæmt umhverfi fyrir börn.
Betri innivist
Teymi umhverfismála og vottana hjá EFLU veitti hönnunarhópum ráðgjöf varðandi kröfur Svansins á hönnunarstigi verkefnisins. Í samræmi við viðmið Svansins var meðal annars lögð áhersla á val byggingarefna, rakaöryggi og góða innivist.
Svansvottunin staðfestir að endurbæturnar uppfylli strangar kröfur, t.d. til rakaöryggis og innivistar, með því að nota byggingarvörur sem eru bæði umhverfisvænni og öruggari fyrir heilsu notenda og þeirra sem komu að framkvæmdum. Slíkar kröfur eru í takt við stefnu Reykjavíkurborgar í bæði nýbyggingum og endurbótum, þar sem sérstaklega er litið til heilsu og vellíðanar barna.
Á framkvæmdatímanum unnu sérfræðingar EFLU náið með Reykjavíkurborg, Umhverfis- og orkustofnun (Svaninum), eftirlitsaðilum og verktökum að innkaupum á tækjabúnaði og samþykkt byggingarefna í samræmi við kröfur Svansins. Byggingarsvið EFLU gegndi jafnframt hlutverki rakaöryggisstjóra á verktímanum og hafði umsjón með framkvæmd rakaöryggisaðgerða.
EFLA tekur að sér fjölbreytta ráðgjöf í tengslum við vistvottanir bygginga, þar á meðal Svansvottun, og styður verkkaupa og hönnunarteymi við að ná settum markmiðum um gæði, umhverfisvernd og heilnæma innivist. Meðal verkefna sem eru í vinnslu er stækkun Eríkisbúða fyrir Landsvirkjun þar sem EFLA sinnir verkeftirliti og Svanseftirliti.
