Vefir EFLU hafa verið tilnefndir til Íslensku vefverðlaunanna fyrir árið 2025 í flokknum Fyrirtækjavefur ársins fyrir stór fyrirtæki. Samtök vefiðnaðarins, SVEF, standa fyrir verðlaununum sem verða veitt í 25. skipti í lok mars.
Fagmennska og traust
Vefirnir eru sex talsins og hafa allir það markmið að gera grein fyrir hinni víðfeðmu þekkingu og lausnaframboði sem byggir upp EFLU-samstæðuna. Um er að ræða alþjóðlegan vef sem talar fyrir EFLU um allan heim, auk staðbundinna vefja fyrir EFLU á Íslandi, í Noregi, Svíþjóð og Póllandi og fyrir HECLU í Frakklandi.
„Fyrir rúmum fjórum árum hófum við heildstæða endurskoðun á öllum vefum EFLU. Áhersla var lögð á ferðalag notandans, að greina hvernig ólíkar þarfir þeirra mætast á vefnum og hvernig við gerum flókið og fjölbreytt efni aðgengilegt á skýran og aðgengilegan hátt. Markmiðið var að vefirnir gerðu ekki einungis grein fyrir þjónustu okkar heldur miðluðu fagmennsku, breidd lausna og því trausti sem við viljum byggja á í samskiptum við viðskiptavini okkar,“ segir Jónína Björk Vilhjálmsdóttir, sviðsstjóri þróunar hjá EFLU.
Mikilvæg viðurkenning
Tilnefning vefja EFLU til Íslensku vefverðlaunanna er mikil hvatning fyrir félagið og bendir til þess að vel hafi tekist til við að þróa aðgengilega, notendavæna og vandaða vefi. „Tilnefningin er viðurkenning fyrir þá miklu vinnu og metnað sem liggur að baki vefjunum og hún staðfestir að samræmd ásýnd á öllum mörkuðum skiptir raunverulegu máli,” bætir Jónína Björk við.
Nú tekur við áframhaldandi þróun og miðlun á öllum vefum EFLU sem gerir okkur kleift að eiga samræmd og markviss samskipti við notendur þvert á félög. Vefirnir eru lykilatriði í miðlun félagsins og okkar mikilvægasti snertipunktur við bæði framtíðarviðskiptavini og starfsfólk.
Alþjóðlegur vefur EFLU, efla-engineers.com, hlaut Íslensku vefverðlaunin fyrir árið 2023 í sama flokki og því er þetta í annað sinn sem EFLA hlýtur tilnefningu SVEF. Vefirnir eru samstarfsverkefni EFLU og Hugsmiðjunnar auk þess sem Digido og CEEDR komu að verkinu sem ráðgjafar.
Önnur fyrirtæki sem eru tilnefnd í sama flokki eru Lyfja, Sjóvá, Íslandsbanki og Dominos. Alls voru 67 veflausnir tilnefndar í sextán flokkum. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Hörpu fimmtudaginn 26. mars.
